Brekadalur 8 - 95.000.000 kr - 300,0 ferm. - 4 svefnherbergi

Einbýlishús - 260 Reykjanesbær

Lýsing eignar

HÚSASKJÓL KYNNIR:

Glæsilegt og vandað einbýlishús á tveimur hæðum sem stendur á einstökum stað við Brekadal 8 í Reykjanesbæ. Fallegt sjávarútsýni og náttúran í kring fangar augað líkt og lifandi málverk sem er síbreytilegt.  Húsið er vel byggt og formið í funkisstíl og kemur skemmtilega út. Húsið er hannað af Einari Ólafssyni hjá Arkiteo. Eignin er 300 fermetrar að stærð en þar af er bílskúrinn 39,3 fermetrar að stærð.

SMELLTU HÉR TIL AР BÓKA Á OPIÐ HÚS OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR BREKADAL 8

Allar nánari upplýsingar veitir Auðun Ólafsson, löggiltur fasteignasali í email: audun@husaskjol.is eða í síma: 8941976

Komið er inn í bjarta og stóra forstofu á neðri hæðinni en þar er hátt til lofts. Stórir gluggar gefa fallega birtu inn í rýmið. Í anddyrinu er rúmgóður fataskápur.

Í forstofunni er gengið upp á aðra hæð, upp fallegan stiga með glerhandriði sem rammar stigann inn.  Skipulagið í húsinu er mjög gott og gefur húseigendum tækifæri til að nýta rýmið vel. Svefnherbergin eru á neðri hæðinni og hjarta heimilisins eldhús, stofa og borðstofa ásamt vinnuherbergi og gestaherbergi á þeirri efri.

Á neðri hæð eru tvö rúmgóð herbergi ásamt hjónasvítu. Hvíti liturinn er allsráðandi. Rýmið býður upp á marga möguleika til nýtingu og létt yfirbragð er yfir herbergjunum. Gólfin eru flísalögð með stórum flísum sem gefa hæðinni skemmtilegt yfirbragð.

Hjónasvítan er rúmgóð. Inn af henni er rúmgott fataherbergi sem nýtist vel og í framhaldinu baðherbergi.  Á baðherberginu eru hvítar flísar eru á veggjum, stílhrein baðinnrétting í dökkum lit, upphengt salerni og rúmgóð sturta.

Á neðri hæðinni er þvottahús með góðri vinnuaðstöðu. Í þvottahúsinu eru flísar á gólfi og góð innrétting í hvítum lit sem tekur bæði þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Þegar gengið er upp á efri hæðina er komið í stórt og opið rými sem tengir saman eldhús, borðstofu og stofu. Rýmið er bjart og skemmtilegt þar sem stórir gluggar gefa rýminu sterkan svip og fallegt útsýni er til allra átta. Eldhúsið er rúmgott og vel skipulagt í alla staði. Innréttingin er háglans í hvítum lit með höldu lausum skápum og skúffum. Eldhústæki eru flest innbyggð eins og ísskápur og uppþvottavél. Vönduð blöndunartæki. Stór og myndarlega eyja er í hjarta eldhússins, með svartbæsaðri eik. Á eyjunni er gott helluborð. Borðplötur eru úr granít. Flísarnar njóta sín vel í þessu opna rými og tengja eldhús, borðstofu og stofu vel saman. Borðstofan nýtur sín vel í þessi plássi á milli eldhús og stofu. Stofan er afar rúmgóð og skipulagði skemmtilegt, stórir gluggar setja svip sinn á stofuna og falleg útsýni blasir við út um stofugluggana yfir hafið.

Á efri hæðinni er gott gestaherbergi ásamt vinnuherbergi. Gestaherbergið er með fallegum hornglugga.

Stórt og gott baðherbergi á efri hæðinni, hvít innrétting og svört borðplata. Góð sturta er til staðar og vönduð blöndunartæki.

Í húsinu eru ýmis nútímaleg þægindi, má þar nefna sjálfstæða gólfhitastýringu í öllum rýmum og herbergjum, falleg innfelld ljós frá Lúmex prýða eignina og fullkomið hússtjórnunakerfi frá Gira. Einnig eru sérhönnuð gluggatjöld frá Luxaflex sem koma vel út.

Innangengt er í bílskúrinn úr forstofu, flísar á gólfi, hitablásari fylgir og er klár til uppsetningar. Inn af bílskúrnum er geymsla. Lóðin er ófrágengin en búið er að gera ýmsar ráðstafanir eins og búið er að setja lagnaleið fyrir heitan pott. Hér er tækifæri fyrir nýja eigendur að gera garðinn að sínum og láta sköpunarkraftinn njóta sín.

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls


Ertu í fasteignahugleiðingum erlendis?  Húsaskjól er meðlimur í Leading Real Estate Companies of the World

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

300,0 m2 4 svefnherbergi 2 baðherbergi Bílskúr: já

Eigindi eignar

Tegund Einbýlishús
Verð 95.000.000 kr
Áhvílandi Ekki skráð
Fasteignamat 74.500.000 kr
Brunabótamat 118.700.000 kr
Stærð 300,0 fermetrar
Herbergi 6
Svefnherbergi 4
Baðherbergi 2
Byggingarár 2008
Lyfta nei
Bílskúr
Bílskýli nei
Garður nei
Greiðslubyrði* 399.000 kr
Útborgun** 19.000.000 kr
Skráð 08.07.2021

* M.v. 80% verðtryggt lán til 35 ára (ath aðeins til viðmiðunar)
** Lágmarks útborgun m.v. að 80% lán sé tekið (ath aðeins til viðmiðunar)