Hrafnhólar 8 - 47.900.000 kr - 80,8 ferm. - 2 svefnherbergi

Fjölbýlishús - 111 Reykjavík

Lýsing eignar

HÚSASKJÓL KYNNIR:

Hrafnhóla 8, fallega 3ja herbergja 80,8 fm íbúð á 5. hæð.  Íbúðin er samkvæmt FMR 75,2 fm og sérgeymsla í sameign er 5,6 fm.  Íbúðin var nánast endurnýjuð frá grunni 2017, innréttingar, gólfefni, innihurðir og baðherbergi.

Húsið er álklætt, sameign er öll snyrtileg og ber vott um góða umhirðu.  Rafmagnsopnun er á hurðum í anddyri og mynddyrasimi.


Íbúðin:
Harðparket er á gólfum, nema baðherberginu sem er flísalagt.  Svalirnar eru með svalalokun.  Fataskápar eru í anddyri.  Eldhúsið er með hvítri innréttingu á tveimur veggjum og borðkrók, SPAN helluborði, bakaraofni ( fyrir gufu ) og innbyggðri uppþvottavél.
Baðherbergið er flísalagt, gólf og veggir, með upphengdu WC, sturtu í baðkar, vask í lítilli innréttingu.  Tengt er fyrir þvottavél og þurrkara, útloftun er góð með viftu.
Hjónaherbergið er rúmgott, með góðum fataskápum. 
Barnaherbergið er af minni gerðinni.
Borðstofa og stofa mynda eina heild, með útgengi á lokaðar svalir með fallegu útsýni til austurs.
Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og þvottahús.

Stutt sagt:  Falleg endurnýjuð íbúð í góðu fjölbýli, stutt í verslunarkjarna, leikskóla, skóla og íþróttaaðstöðu.

Upplýsingar veitir Guðbrandur Kristinn Jónasson lgfs, í síma 896 3328, gudbrandur@husaskjol.is. 


 

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls


Ertu í fasteignahugleiðingum erlendis?  Húsaskjól er meðlimur í Leading Real Estate Companies of the World

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

80,8 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 47.900.000 kr
Áhvílandi Ekki skráð
Fasteignamat 35.200.000 kr
Brunabótamat 28.600.000 kr
Stærð 80,8 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1974
Lyfta
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður nei
Greiðslubyrði* 201.180 kr
Útborgun** 9.580.000 kr
Skráð 29.09.2021

* M.v. 80% verðtryggt lán til 35 ára (ath aðeins til viðmiðunar)
** Lágmarks útborgun m.v. að 80% lán sé tekið (ath aðeins til viðmiðunar)