Fjölbýlishús - 107 Reykjavík
HÚSASKJÓL KYNNIR:
Meistaravellir 7 seldust á einu opnu húsi, mörg tilboð bárust í eignina og margir kaupendur tilbúnir sem eru að leita að sambærilegri eign. Sumir geta boðið upp á langa afhendingu. Við erum með 25 kaupendur á skrá sem eru að leita að sambærilegri eign, einnig langan lista í öðrum hverfum á höfuðborgarsvæðinu.
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Skráðu þig á mínar síður og vertu fyrstur til að fá fréttirnar: Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Viltu vita hvað okkar viðskiptavinir hafa að segja: Smelltu hér til að lesa umsagnir viðskiptavina
Viltu vera með puttann á fasteignapúlsinum: Smelltu hér til að skrá þig á fréttabréfið okkar
SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR MEISTARAVELLI 7
2ja herbergja íbúð í kjallara við Meistaravelli 7. Íbúðin er skráð 54,2 fm og geymslan 2,1 fm, heildarstærð eignar er því 56,3 fm. Mjög vinsæl staðsetning í Vesturbænum og stutt í allt.
Húsið er allt nýyfirfarið að utan. Skipt um gler og glugga eftir þörfum. Þak og niðurföll yfirfarin. Húsið sprunguviðgert og málað. Skipt um handrið á svölum. Einnig var stigagangur málaður og skipt um teppi í október 2021.
Lýsing eignar:
Komið inn í forstofu með parketi og innbyggðum fataskáp. Baðherbergi var endurnýjað 2018 af fagmönnum, flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, innrétting og upphengt salerni. Svefnherbergi er með parketi á gólfi og fataskápum. Eldhús er með innréttingu á einum vegg, neðri skápar og hillur, lakkað steingólf og borðkrókur við glugga, ísskápur má fylgja. Stofa með parketi.
Í sameign er sérgeymsla, hjólageymsla, sameiginlegt þvottahús sem og þurrkherbergi.
Staðsetning og nærumhverfi:
Íbúðin er staðsett á mjög vinsælum stað í Vesturbænum, í göngufæri við íbúðina er Grandaskóli, Melaskóli og Hagaskóli, Vesturbæjarlaug sem er ein vinsælasta sundlaug höfuðborgarsvæðisins, Melabúðin, Kaffihús Vesturbæjar, Brauð og Co, Vesturbæjarís og margt fleira. Góðar göngu-, hlaupa-, og hjólaleiðir eru í Vesturbænum og Ægissíðan er þarna skammt frá þar sem hægt er að fara út í Nauthólsvík eða út á Gróttu. Nálægðin við sjóinn er eitt af helstu einkennum hverfisins og einn fjölsóttasti göngustígur borgarinnar er einmitt Ægissíðan.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma: 863-0402
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Ertu í fasteignahugleiðingum erlendis? Húsaskjól er meðlimur í Leading Real Estate Companies of the World
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Tegund | Fjölbýlishús |
Verð | 39.700.000 kr |
Áhvílandi | Ekki skráð |
Fasteignamat | 28.650.000 kr |
Brunabótamat | 18.150.000 kr |
Stærð | 56,3 fermetrar |
Herbergi | 2 |
Svefnherbergi | 1 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1964 |
Lyfta | nei |
Bílskúr | nei |
Bílskýli | nei |
Garður | já |
Greiðslubyrði* | 166.740 kr |
Útborgun** | 7.940.000 kr |
Skráð | 17.11.2021 |
* M.v. 80% verðtryggt lán til 35 ára (ath aðeins til viðmiðunar)
** Lágmarks útborgun m.v. að 80% lán sé tekið (ath aðeins til viðmiðunar)