Einbýlishús - 111 Reykjavík
HÚSASKJÓL KYNNIR:
Búin að fá nóg af nágrönnunum og dreymir um einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu sem er töluvert endurnýjað og hefur verið nostrað við. Einbýlishús með 4 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Einbýlishús með stórum palli sem er frábær viðbót við húsið og stóran garð. Einbýlishús sem er örstutt við eitt besta útivistarsvæðið á höfuðborgarsvæðinu. Þá er Keilufell 41 hárrétta eignin fyrir þig.
Einbýlishús á 2 hæðum sem hefur verið töluvert endurnýjað við Keilufell 41, 111 Reykjavík. 4 rúmgóð svefnherbergi, 2 baðherbergi og stór lóð með ca 50 fm. palli. Garðhýsi í garðinum. Húsið er skráð 175,6 og þar af bílskýli 28,8 fm sem í dag er opið að hluta og stór köld geymsla að hluta.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR KEILUFELL 41
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign.
Linkur á video af Keilufelli 41
Smellið hér til þess að sjá teikningar af eigninni
Eignin hefur fengið gott viðhald á síðustu árum
2022: Skipt um járn og klæðningu á þaki og þakrennur
2021: Stigi og stigapallur teppalaður með african spirit teppi
2019: Skipt um alla glugga nema í eldhúsi og 2 í stofu
2019: Baðherbergi á efri hæð endurnýjað
2019: Settur hiti í innkeyrslu og stétt að húsi
2017-2018: Skipt um allar neysluvatnslagnir út úr húsi og skolp frá baðherbergi og þvottahúsi út fyrir hús. Baðherbergi á neðri hæð endurnýjað. Skipt um allt gólfefni. Neðri eldhússkápar filmaðir og efri endurnýjaðir
FASTEIGNAMAT 2023 VERÐUR 82.450.000
Lýsing eignar:
Neðri hæð: forstofa með flísum og fatahengi, inn af forstofu er baðherbergi, flísar á gólfi og með sturtuklefa, gluggi, handklæðaofn og innrétting. Gangur með harðparketi. Herbergi með harðparketi á gólfi. Þvottahús með flísum á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, snúrur, hurð út í garð. Stofa með harðparketi á gólfi, útgengt út í suðausturgarð með ca 50 fermetra palli. geymsla undir stiga. Eldhús með l-laga innréttingu, efri og neðri skápum, borðkrókur við glugga, harðparket á gólfi.
Efri hæð: gengið upp teppalagðan tréstiga, hol með teppi og kalt geymsluloft yfir hæðinni. Baðherbergi vínylparket á gólfi, fibo baðplötur frá Þ.Þorgrímssyni við baðkar, innrétting og gluggi. Hjónaherbergi er rúmgott, með harðparket á gólfi og skápum, fataherbergi er í enda hols og súðageymslur. Einnig eru tvö barnaherbergi með harðparketi á gólfi.
Úti í garði er geymsluskúr sem er ca. 7 fm. Bílskúrinn er nýttur sem opið bílskýli að hluta og köld geymsla að hluta.
Hvað segir eigandinn:
Það sem er best við staðsetninguna er hversu friðsælt hverfið er og nálægðin við Elliarárdalinn og þá náttúruparadís sem hann hefur upp á að bjóða. Hverfið er mjög gróið og rosalega fallegt á sumrin. Skjólsælt og dásamlegt að njóta á pallinum og í garðinum. Á veturna er maður svo áhyggjulaus með hita í innkeyrslunni og stétt upp að húsi og því lítill sem enginn mokstur. Stutt í alla þjónustu: leikskóli, grunnskóli, sundlaug, heilsurækt, bókasafn og matvöruverslanir eru allt í göngufæri.
Staðsetning og nærumhverfi:
Efra breiðholt var skipulagt í upphafi áttunda áratugarins. Keilufell er eins og þorp í borg sem er með aðgangi að útivistarparadísinni Elliðaárdal. Hverfið afmarkast af Elliðaárdal í norðri og austri, Breiðholtsbraut í suðri og opnu grænu svæði í vestri. Í göngufæri er Fellaskóli, íþróttasvæði Leiknis, Fjölbrautarskólinn í Breiðholti, Breiðholtslaug, Gerðuberg menningarmiðstöð,Í Hólagarði er Bónus og einnig fleiri verslanir. Hægt er að nálgast helstu þjónustu í Mjódd. Í Seljahverfi er Krónan og einnig skíðasvæði með lyftu.
Það tekur einungis eina og hálfa mínútu að ganga frá húsinu að gögnustíg sem tvístrast, til hægri liggur hann í elliðaárdalinn þar sem hægt er að njóta fallegu náttúrunnar, gangandi, hjólandi eða hlaupandi. Þar er hægt að fara í frispí golf, aðeins lengra þá er maður kominn að hesthúsunum í Víðidal. Ef maður gengur til hægri í tvær og hálfa mínútu þá eru tveir leiksskólar, einnig er þar frístundarheimili fyrir 3. og 4. bekk sem er sameiginlegt fyrir Fellaskóla og Hólabrekkuskóla. Hólabrekkuskóli er í 5 mín. göngufæri og það hefur verið möguleiki að sækja um bæði í Fellaskóla og Hólabrekkuskóla fyrir þá sem búa á þessu svæði.
Á hvað eru sérbýli í Breiðholti að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir alla kaupsamninga í Breiðholti.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir, löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma: 863-0402
Pantaðu FRÍTT verðmat
Kynntu þér nýlegar sölur í þínu hverfi
Fáðu ábendingu á nýjar eignir úr kaupóskakerfinu
Meðmæli fyrri viðskiptavina
Fylgdu mér á Instagram
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Ertu í fasteignahugleiðingum erlendis? Húsaskjól er meðlimur í Leading Real Estate Companies of the World
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Tegund | Einbýlishús |
Verð | 95.700.000 kr |
Áhvílandi | Ekki skráð |
Fasteignamat | 66.900.000 kr |
Brunabótamat | 51.100.000 kr |
Stærð | 175,6 fermetrar |
Herbergi | 5 |
Svefnherbergi | 4 |
Baðherbergi | 2 |
Byggingarár | 1973 |
Lyfta | nei |
Bílskúr | nei |
Bílskýli | nei |
Garður | nei |
Greiðslubyrði* | 401.940 kr |
Útborgun** | 19.140.000 kr |
Skráð | 04.11.2022 |
* M.v. 80% verðtryggt lán til 35 ára (ath aðeins til viðmiðunar)
** Lágmarks útborgun m.v. að 80% lán sé tekið (ath aðeins til viðmiðunar)