Sóltún 12 - 99.800.000 kr - 119,9 ferm. - 3 herbergi

Fjölbýlishús - 105 Reykjavík

Lýsing eignar

HÚSASKJÓL KYNNIR:

Sóltún 12, 105 Reykjavík er seld með fyrirvara. Mjög mikil eftirspurn er eftir 3ja herbergja íbúðum í hverfinu. Við erum með 20 kaupendur á skrá sem eru að leita að sambærilegri eign.

Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Glæsilega og vandaða 3ja herbergja endaíbúð á fimmtu og efstu hæð í viðhaldsfríu lyftuhúsi við Sóltún 12 í Reykjavík. Íbúðin er með tvennum yfirbyggðum svölum sem snúa annars vegar í austur og hins vegar í vestur. Fallegt útsýni er úr íbúðinni sem er með glugga á þrjá vegu. Gólfsíðir gluggar eru í alrými íbúðarinnar sem gera hana einstaklega bjarta. Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar og hurðar úr eik, gólfhiti er í allri íbúðinni og myndavéladyrasími. Stæði í lokaðri bílageymslu og mjög rúmgóð geymsla. 

Íbúðin er skráð 119,9 fm að stærð og þar af er geymsla í sameign 20,1 fm að stærð. Bílastæði í bílageymslu er merkt B31. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og eldhús, stofu og borðstofu sem er eitt opið alrými.   

Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is 

VINSAMLEGAST SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENDAN UPPLÝSINGABÆKLING

        Nánari lýsing á eign:
Gólfefni íbúðarinnar eru eikarparket og flísar á baðherbergi og þvottahúsi. 
Forstofa: Er rúmgóð með tvöföldum eikar fataskápum.
Þvottahús: Er inn af forstofu með flísum á gólfi og skolvaski.
Eldhús/stofa/borðstofa: Er opið og bjart alrými með gluggum á þrjá vegu. Eldhúsinnréttingin er úr eik með efri og neðri skápum með flísum á milli og eyju. Nýlegar borðplötur úr graníti. Öll eldhústæki eru vönduð og nýlega endurnýjuð, 90 cm spamhelluborð, háfur úr stáli, ofn í vinnuhæð sem er með innbyggðum hreinsibúnaði. Fallegur gluggi er í eldhúsi með útsýni til fjalla, útgengt er út á austursvalir sem eru yfirbyggðar með tréflísum á gólfi. Úr stofu er útgengt út á yfirbyggðar vestursvalir sem eru með fallegu útsýni yfir borgina. Gólfsíðir gluggar í alrými gera íbúðina bjarta og glæsilega. 
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum eikar fataskápum og fallegum glugga með útsýni til fjalla.  
Svefnherbergi/vinnuherbergi: Rúmgott með fallegu útsýni. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting úr eik, walk inn sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.  
Geymsla: Rúmgóð geymsla er í sameign sem er 20,1 fm að stærð. 
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði merkt B31 í lokaðri bílageymslu með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. 
Sameign: Hjóla-og vagnageymsla.

Fyrirhugað fasteignamat árið 2024 er 86.550.000 kr.

Hér er um að ræða einstaklega fallega og glæsilega 3ja herbergja endaíbúð á fimmtu og efstu hæð með stæði í lokaðri bílageymslu í vönduðu lyftuhúsi í vinsælu hverfi sem er mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla helstu verslun og þjónustu. 

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls


Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

119,9 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 99.800.000 kr
Áhvílandi 0 kr
Fasteignamat 75.550.000 kr
Brunabótamat 62.970.000 kr
Stærð 119,9 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 2007
Lyfta
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Greiðslubyrði* 419.160 kr
Útborgun** 19.960.000 kr
Skráð 17.08.2023

* M.v. 80% verðtryggt lán til 35 ára (ath aðeins til viðmiðunar)
** Lágmarks útborgun m.v. að 80% lán sé tekið (ath aðeins til viðmiðunar)