Júní 2023 - Annan hring í húsnæðishringekjunni?

Húsnæðisverð hefur ekki hækkað að raunvirði undanfarna 12 mánuði. Undanfarna þrjá áratugi hefur húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu almennt hækkað um 5,1% að raunvirði á hverjum 12 mánuðum og því er óhætt að segja að markaðurinn sé nokkuð kaldur um þessar mundir. Kaupsamningum heldur áfram að fækka og hafa ekki verið færri undanfarinn níu ár, þar að auki kom fram í mánaðarskýrslu HMS í apríl að aðeins 6% seldra íbúða á höfuðborgarsvæðinu í mars voru nýjar en hlutfall nýrra íbúða hefur ekki verið svo lágt síðan árið 2013. Í því samhengi er einnig vert að nefna að gjaldþrot fyrirtækja í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð hafa ekki verið fleiri síðan árið 2011.

Erfiðleikar við að selja nýjar íbúðir koma ekki á óvart í ljósi mikilla vaxtahækkana en stýrivextir hafa nú hækkað um 8 prósentustig á tveimur árum og standa í 8,75%. Nafnverð húsnæðis hefur þrátt fyrir allt ofangreint sýnt mikinn viðnámsþrótt í gegnum vaxtahækkunarferlið og þekktasta „sófasérfræðingalögmál“ landsins um að húsnæðisverð geti ekki lækkað að nafnverði hefur að mestu haldið hingað til. Það hefur hins vegar leitt til þess að framboð íbúða hefur aukist til muna vegna lítillar sölu og að verðbólga hefur reynst þrálátari en ella sem hefur leitt til hærri vaxta.  

Samtök iðnaðarins hafa bent á að háir vextir hafi áhrif á byggingageirann og skv. könnun sem gerð var meðal meðlima samtakanna munu aðildarfélögin hefja byggingu á mun færri íbúðum á næstu 12 mánuðum en undanfarna 12 mánuði. Á sama tíma er að eiga sér stað fordæmalaus fólksfjölgun hér á landi en íbúum landsins fjölgaði um 11.500 manns í fyrra eða 3,1%.

Horft fram á við má ætla að til skamms tíma muni hátt vaxtastig halda markaðnum köldum og enn er útlit fyrir verðlækkanir, a.m.k. að raunvirði. Gífurleg fólksfjölgun setur hins vegar þrýsting á eftirspurnarhliðina og ef byggingageirinn bregst við hærri vöxtum með því að draga úr uppbyggingu er ljóst að við munum fara annan hring í húsnæðishringekjunni. Á fyrsta fjórðungi ársins fjölgaði íbúum um 3.000 manns í viðbót og í raun útlit fyrir að fólksfjölgun hér á landi sé verulega vanmetin í mannfjöldaspá Hagstofunnar.  Verði mikil fólksfjölgun áfram raunin og takmörkuð íbúðauppbygging þekkjum við niðurstöðuna, en þá má vænta þó nokkurra húsnæðisverðshækkana eftir 2-3 ár.

Halldór Kári Sigurðarson Hagfræðingur Húsaskjóls S: 856-6933 Netfang: halldork15@gmail.com