Framnesvegur 17 - 69.500.000 kr - 91,3 ferm. - 5 herbergi

Hæð - 101 Reykjavík

Lýsing eignar

HÚSASKJÓL KYNNIR:

Framnesvegur 17 seldist á einu opnu húsi og er í fjármögnunarferli.  Mikill áhugi var á eigninni og er mikil eftirspurn eftir sérhæðum í 101 og 107 Reykjavík.

Á hvað eru sérhæðir í Reykjavík að seljast? Smelltu hér til að sjá alla kaupsamninga á sambærilegum eignum í 101 Reykjavík

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign. 

Fáðu ábendingu á nýjar eignir úr kaupóskakerfinu

Góð 91.3 fm, 5 herbergja íbúð á 2. hæð í þríbýlishúsi sem hefur fengið talsvert viðhald á síðustu árum við Framnesveg 17, 101 Reykjavík. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, samliggjandi stofu og borðstofu, baðherbergi, gang, eldhús, sérgeymslu og sér þvottahús í kjallara. Fallegur sólríkur, gróinn og skjólgóður bakgarður. Frábær staðsetning í gamla Vesturbænum í grennd við skóla á öllum stigum, fjölbreytta verslun og þjónustu miðbæjarins og Grandans.

FASTEIGNAMAT 2024 VERÐUR 61.900.000 KR.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR FRAMNESVEG 17. Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign.

Smelltu hér til að skoða teikningar af eigninni

Nánari lýsing eignarinnar:

Forstofa/gangur: Komið er inn á gang. Úr gangi er gengið í eldhús, borðstofu, stofu og baðherbergi. Parket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með glugga til suðurs. Parket á gólfi.
Borðstofa: Samliggjandi stofu, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Innaf borðstofu, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Upphengt salerni, innbyggt baðkar með sturtu, vaskur og speglaskápur.
Eldhús: Gott skápapláss með efri og neðri skápum, mósaíkflísar á milli skápa. Innbyggður ofn, spanhelluborð og háfur. Korkflísar á gólfi.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi. Gengið er í svefnherbergið úr stigagangi. Svefnherbergi III: Rúmgott, innaf stofu. Parket á gólfi.
Geymsla: Rúmgóð með glugga. Getur verið nýtt á margvíslegan hátt. 
Sérþvottahús: Í kjallara. Rúmgott.
Garður: Garðurinn er í sameign og er skjólgóður og snýr í suður, fullur af blómum, trjám og berjarunnum, rúmgóð grasflöt.

Kalda portið sem liggur í gegnum húsið og út í garð nýtist sem sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og yfir því öllu er lág geymsla undir t.d. dekk.
Húsið var málað árið 2015 ásamt smávægilegum sprunguviðgerðum. Frárennslislagnir voru endurnýjaðar að hluta undir húsinu og út í götu árið 2019. Lokið er við að skipta um járn og pappa á þaki hússins og laga kvisti.

Góð 5 herbergja íbúð með tveimur stofum og þremur svefnherbergjum á vinsælum stað í gamla Vesturbænum með fjölbreytta verslun og þjónustu allt í kring.

Allar nánari upplýsingar veitir  Kristin María Gunnarsdóttir, nemi til löggildingar fasteignasala í email: kristin@husaskjol.is eða í síma: 659-6075

Pantaðu FRÍTT verðmat
Kynntu þér nýlegar sölur í þínu hverfi
Fáðu ábendingu á nýjar eignir úr kaupóskakerfinu

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls


Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

91,3 m2 3 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Hæð
Verð 69.500.000 kr
Áhvílandi 0 kr
Fasteignamat 55.400.000 kr
Brunabótamat 39.900.000 kr
Stærð 91,3 fermetrar
Herbergi 5
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 1929
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Greiðslubyrði* 291.900 kr
Útborgun** 13.900.000 kr
Skráð 17.11.2023

* M.v. 80% verðtryggt lán til 35 ára (ath aðeins til viðmiðunar)
** Lágmarks útborgun m.v. að 80% lán sé tekið (ath aðeins til viðmiðunar)