Dvergabakki 22 - 63.700.000 kr - 92,5 ferm. - 5 herbergi

Fjölbýlishús - 109 Reykjavík

Lýsing eignar

Húsaskjól kynnir Dvergabakka 22, vel skipulagða 5  herbergja 92,5 fm íbúð, þar af er 4,5 fm geymslu í sameign og 8 fm íbúðarherbergi í kjallara. 

*** Sölusýning laugardaginn 8.11.25 kl 13:00, mikilvægt að bóka tíma með því að smella hér.  ***

Lýsing:

Gengið er upp fjórar úti tröppur inn í sameiginlega forstofu stigagangs, þaðan er lárétt aðgengi að íbúðinni á 1. hæð.

Þegar komið er inn í íbúðina, er eldhúsið til vinstri með endurnýjaðri innréttingu á tveimur veggjum, inn af eldhúsi er vinnuherbergi, sem var áður þvottahús. Stofan er opin frá eldhúsi, björt, með útgengi á svalir.  Gangur til hægri leiðir mann inn í barnaherbergi, baðherbergi og hjónaherbergi.

Baðherbergið er endurnýjað, flísalagt, veggir og gólf, sturtuklefi, upphengt wc, handklæðaofn, vaskur á litlum skáp, tengi fyrir þvottavél. Hjónaherbergið er með 5x fatskápum.  Vinnuherbergið er með 2x skápum.

Gólfefni íbúðar er harðparket, nema á baðherbergi, það er flísalagt. 

Íbúðarherbergið í kjallara er með harðparket á gólfi og opnanlegum glugga.

Stutt sagt fín íbúð, með möguleika á útleigu herbergi í kjallara. 

Staðsetningin er góð, í göngufæri við Breiðholtsskóla og 3 leikskóla.

Nánari upplýsingar veitir Guðbrandur Kristinn Jónasson, lgfs gudbrandur@husaskjol.is gsm 896 3328. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

92,5 m2 3 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eiginleikar eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 63.700.000 kr
Fasteignamat 54.350.000 kr
Brunabótamat 48.950.000 kr
Stærð 92,5 fermetrar
Herbergi 5
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 1968
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 05.11.2025

Upplýsingabæklingur/opið hús

Deila eign



Pin it