Fannarfell 4 - 51.900.000 kr - 84,1 ferm. - 3 herbergi

Fjölbýlishús - 111 Reykjavík

Lýsing eignar

ÞESSI EIGN ER ÞEGAR SELD (MEÐ FYRIRVARA)

Allar nánari upplýsingar veitir Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í email: petur@husaskjol.is eða í síma 862 5270 frá 09:00-17:00 á virkum dögum.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. 
Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign.

 

Húsaskjól kynnir til sölu þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð í húsi nr. 4 við Fannarfell í 111 Breiðholti. Eignin er skráð 84,1 fm að stærð, þar af íbúðarrými 73,3 fm og geymsla 5,8 fm, og skiptist í forstofu/skála, stofu, eldhús, hjónaherbergi, barnaherbergi og baðherbergi auk yfirbyggðra svala sem eru 5 fm sem vísa í suður. Þá fylgir eign sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi auk hjóla- og vagnageymslu.

 

Nánari lýsing
Anddyri og sameign: Í anddyri eru flísar á gólfi og á stiga er teppi. 
Forstofa/skáli: tengir saman vistarverur íbúðar og þar er stór nýlegur fataskápur og skóskápur. Á gólfi eru flísar. 
Hjónaherberg: er með fataskápum, hillum, parketi á gólfi og ágætum glugga til norðurs.
Barnaherbergi: er með fataskáp, parketi á gólfi og glugga til norðurs.
Eldhús: er rúmgott, með ágætri innréttingu, nýjum efri skápum, góðri vinnuaðstöðu, borðkrók og glugga til norðurs. Á gólfi eru flísar. Pláss fyrir stóran ísskáp og þvottavél.
Baðherbergi: er endurnýjað með mikið skápapláss, borðpláss, allt flísalagt með sturtuklefa, upphengt klósett og góðum vaski.
Stofa: er björt og með útgengi á yfirbyggðar suður svalir. Á gólfi er parket.
Sameign: á jarðhæð eignar er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

 

Staðsetning og nærumhverfi
Um er að ræða mjög skemmtilega og bjarta 3ja herb. 84,1 fm íbúð í klæddu húsi við Fannarfell í Fellahverfi Reykjavíkur. Eignin er með endurnýjuðu baðherbergi og hefur að hluta til verið máluð að innan nýlega. Örstutt í alla helstu þjónustu eins og Breiðholtslaug, World Class, grunn og leikskóla, menningarmiðstöðina í Gerðubergi, bókasafn, Íþróttafélagið Leiknir og Íþróttamiðstöðina í Austurbergi, matvörubúðir eins og Krónuna, Bónus og Strætóbiðstöð.

 

Hér er hægt að nálgast teikningar af eign

Hér er hægt að skoða stutt yfirlitsmyndband af eigninni

 

Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í email: petur@husaskjol.is eða í síma 862 5270 frá 09:00-17:00 á virkum dögum.

 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

84,1 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 51.900.000 kr
Fasteignamat 47.450.000 kr
Brunabótamat 36.100.000 kr
Stærð 84,1 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1973
Lyfta
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður nei

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it