Fjölbýlishús - 105 Reykjavík




































































***NÝTT Á SKRÁ***
Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega fallega og sjarmerandi 3ja herbergja risíbúð í tvíbýlishúsi við Laugarnesveg 73 á vinsælum stað í Laugarneshverfinu. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð m.a. er nýtt eldhús, baðherbergi og gólfefni að hluta svo eitthvað sé nefnt. Sameiginlegur inngangur með neðri hæð, sér bílastæði á lóð og rúmgóður suðurpallur sem er í séreign.
*** SÖLUSÝNING: LAUGARNESVEGUR 73 ÍBÚÐ 201, FIMMTUDAGINN 06. NÓVEMBER 2025 KL 17:00-17:30. JÓHANNA KRISTÍN GÚSTAVSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 6989470 EÐA EMAIL: JOHANNA@HUSASKJOL.IS ***
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Laugarnesvegur 73 Íbúð 201.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.
Íbúðin er skráð 49,1 fm að stærð og þar af er 1,0 fm geymslu undir stiga en íbúðin er stærri að grunnfleti því hún er undir súð. Hún skiptist í tvö svefnherbergi, eldhús-og stofu sem er opið og bjart alrými, rúmgott baðherbergi sem er með tengi fyrir þvottavél, geymslu undir stiga og risloft sem er yfir allri íbúðinni.
FASTEIGNAMAT 2026 VERÐUR 51.650.000,-
Nánari lýsing á eign:
Gólfefni íbúðarinnar er ljóst viðarparket.
Gengið er inn um sameiginlegan inngang á miðhæð með íbúð neðri hæðar. Dúklagður stigi er upp í risíbúðina. Baðherbergið er rúmgott með sjarmerandi frístandandi baðkari, hvít innrétting með skúffum og innbyggðum vask, upphengt klósett, tengi fyrir þvottavél og opnanlegur gluggi. Eldhús og stofa er eitt opið og bjart alrými með gluggum á tvo vegu. Eldhúsinnréttingin er hvít með efri-og neðri skápum, innbyggður ísskápur, span helluborð með tveimur hellum og hvítur bakaraofn. Svefnherbergin eru tvö og eru þau bæði með góðum gluggum og úr hjónaherberginu er útsýni út á sjó milli húsa. Geymsla er undir stiga á fyrstu hæð hússins.
Hér er um að ræða mikið endurnýjaða, bjarta og afar sjarmerandi 3ja herbergja risíbúð í tvíbýlishúsi í vinsælu hverfi við Laugardalinn þar sem stutt er í allar áttir. Leikskólarnir Laugasól og Hof og grunnskólarnir Laugarnesskóli og Laugalækjarskóli eru í göngufæri ásamt Laugalæk þar sem er matvörubúð, kjötbúð, bakarí og kaffishús. Einnig er stutt í Borgartúnið og útivistarparadísina í Laugardalnum þar sem eru fallegar göngu-og hjólaleiðir, ásamt Laugardagslauginni, World class, Skautahöllin, Fjölskyldu- og Húsdýragarðurinn svo eitthvað sé nefnt.
Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Fjölbýlishús |
| Verð | 57.800.000 kr |
| Fasteignamat | 48.300.000 kr |
| Brunabótamat | 26.250.000 kr |
| Stærð | 49,1 fermetrar |
| Herbergi | 3 |
| Svefnherbergi | 2 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 1943 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | nei |
| Garður | já |
| Skráð | 03.11.2025 |