Fjölbýlishús - 107 Reykjavík
*** SÖLUSÝNING: SKELJAGRANDI 1 ÍBÚÐ 205, MÁNUDAGINN 06. OKTÓBER 2025 KL 18:00-18:30. JÓHANNA KRISTÍN GÚSTAVSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 6989470 EÐA EMAIL: JOHANNA@HUSASKJOL.IS ***
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Skeljagrandi 1 Íbúð 205.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.
Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: fallega og bjarta 3ja herbergja endaíbúð á annarri hæð með sér inngangi af svölum, sjávarútsýni, bílastæði í lokuðum bílakjallara með tengi fyrir rafmagnsbíl og suðursvölum. Búið er að endunýja eldhús, baðherbergi og fataskápa. Mjög góð staðsetning.
Íbúðin er skráð 87,0 fm að stærð, stæði í bílageymslu er 28,3 fm samtals 115,3 fm. Einnig er rúmgóð 15,0 fm geymsla í sameign sem er ekki inni í skráðum fm á íbúðinni. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, rúmgóða stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél.
FASTEIGNAMAT 2026 VERÐUR: 78.050.000 KR.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA VIDEO AF EIGNINNI
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Nánari lýsing á eign:
Gólfefni íbúðarinnar eru eikarparket og flísar.
Forstofa: Komið er inn í forstofu með sérinngangi af opnum svölum. Rúmgóðir hvítir fataskápar, flísar á gólfi.
Eldhús: Er opið inn í borðstofu og stofu, falleg dökkgrá innrétting með efri-og neðri skápum, endurnýjuðum ofn, keramikhelluborði og viftu. Fallegt útsýni út á sjó.
Stofa/borðstofa: Er rúmgott og bjart rými með gluggum á þrjá vegu. Útgengt út á suðursvalir sem snúa inn í garðinn.
Baðherbergi: Fallegar ljósar flísar á gólfi og hluta af veggjum, hvít innrétting með innbyggðum vask og speglaskápur með lýsingu, upphengt klósett og baðkar með sturtu og gleri.
Hjónaherbergi: Rúmgóður fataskápur með rennihurðum úr eik.
Barnaherbergi: Hvítur fataskápur og fallegt útsýni úr á sjó.
Geymsla: Rúmgóð geymsla er í sameign sem er um 15,0 fm að stærð sem er ekki inni í skráðum fm íbúðarinnar.
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði merkt 125 í lokaðri bílageymslu með tengi fyrir rafmagnsbíl. Stæðið er vel staðsett á móti inngangi í stigagang.
Sameign: Hjóla-og vagnageymsla. Sameiginlegt þvottahús. Snyrtilegur stigagangur.
Hér er um að ræða mikið endurnýjaða og bjarta 3ja herbergja endaíbúð á annarri hæð með sérinngangi af svölum, fallegu sjávarútsýni og stæði í lokaðri bílageymslu á góðum stað í vinsælu hverfi á Grandanum í Vesturbænum þar sem stutt er í leik-og grunnskóla, alla helstu verslun og þjónustu. Einnig er íþróttasvæði og sundlaug í göngufæri og fallegur göngu og hjólastígur við sjóinn.
Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Tegund | Fjölbýlishús |
Verð | 73.300.000 kr |
Fasteignamat | 70.900.000 kr |
Brunabótamat | 52.080.000 kr |
Stærð | 115,3 fermetrar |
Herbergi | 3 |
Svefnherbergi | 2 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1981 |
Lyfta | nei |
Bílskúr | nei |
Bílskýli | já |
Garður | já |
Skráð | 02.10.2025 |