Holtasel 20 - 134.900.000 kr - 323,4 ferm. - 7 herbergi

Parhús - 109 Reykjavík

Lýsing eignar

Holtasel 20, 109 Reykjavík er selt og er í fjármögnunarferli.  Margir eru að leita að sérbýlum í Breiðholtinu sem og víðar á höfuðborgarsvæðinu, kostur ef það er aukaíbúð og erum við því með marga kaupendur á skrá að leita að sambærilegri eign, margir með minni eign í sama hverfi sem vilja skipti á stærri.

Á hvað eru sérbýli í Breiðholtinu að seljast? Smelltu hér til að sjá alla kaupsamninga á sambærilegum eignum í 109 Reykjavík
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign. 

Fáðu ábendingu á nýjar eignir úr kaupóskakerfinu

Meðmæli fyrri viðskiptavina
Fylgdu mér á Instagram
Fylgdu mér á TikTok

Parhús við Holtasel 20, 109 Reykjavík. Húsið er á 2 hæðum ásamt kjallara þar sem búið er að útbúa einstaklingsíbúð að hluta. Húsið er skráð 215,4 en er líklega í kringum 321 fm þar sem kjallarinn er alveg óskráður. Frábært fjölskylduhús með 4 svefnherbergjum í dag og útleigueiningu í kjallara. Húsið er skráð 215,4 og þar af er innbyggður bílskúr 29,4 fm.

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR HOLTASEL 20. Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Smelltu hér til að skoða video af eigninni
Smelltu hér til að skoða teikningar af eigninni

Þetta skemmtilega parhús á tveimur hæðum stendur við Holtasel 20, 109 Reykjavík. Hverfið er gróið og góðir skólar í nánd. Stutt er í alla grunnþjónustu og fjölbreytt þjónusta til staðar.  Staðsetningin er einkum góð þegar horft er til samgönguleiða. Einnig er stutt í náttúruna og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir til allra átta. Garður er að mestu pallalagður og hellulagt bílaplan með hita er fyrir frama húsið. Innbyggður bílskúr og útleigueining í kjallara.

Lýsing eignar:
Gengið er inn á miðhæð og komið inn í forstofu með flísum á gólfi og fatahengi. Þaðan er gengið inn í rúmgóða stofu með harðparketi og opið inn í eldhús með L-laga innréttingu ásamt innréttingu á heilum vegg, korkur á gólfi. Frá eldhúsi er gengið út á pall, en einnig er pallur fyrir framan hús. Frá stofu er gengið út í aukaforstofu með fataskáp. Þaðan er annars vegar hægt að ganga inn í innbyggðan bílskúr og hins vegar niður í kjallara, auk þess sem það er útgengt á pallinn.
Efri hæð: Gengið upp steyptan stiga með kókósteppi og komið inn í rúmgott hol sem er nýtt sem sjónvarpshol. Þar er arinn sem eigandi notar mikið. Þennan skorstein væri líka hægt að nýta sem útiarinn á svölunum. 4 svefnherbergi á hæðinni, öll með parketi og hjónaherbergi með fataherbergi innaf. Baðherbergi er með flísum á gólfi og panil á veggjum, baðkar, gluggi og hvít innrétting. Frá sjónvarpsholi er gengið út á mjög rúmgóðar svalir og þar væri möguleiki á að hafa útiarinn.
Kjallari: Gengið niður timburstiga og komið inn í hol með flísum. Innaf holi er herbergi með léttri eldhúsinnréttingu og vaski og tengi fyrir þvottavél. 3 aukarými í kjallara sem aðalíbúðin notar. Skrifstofa, þvottahús og geymsla. Frá holi er gengið inn í rými sem er nýtt fyrir útleiguíbúðina. Rúmgott baðherbergi með salerni, sturtuklefa og saunaklefa. Mjög rúmgott herbergi sem er með léttri eldunaraðstöðu og einnig er heitur pottur.

Þetta er virkilega spennandi hús í þessu vinsæla fjölskylduhverfi. Þetta skemmtilega hús er kjörið fjölskylduhreiður þar sem rýmin eru stór og umhverfið gróið og nærandi.  

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Pantaðu verðmat
Kynntu þér nýlegar sölur í þínu hverfi
Fáðu ábendingu á nýjar eignir úr kaupóskakerfinu

Meðmæli fyrri viðskiptavina
Fylgdu mér á Instagram
 

 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

323,4 m2 5 svefnherbergi 2 baðherbergi Bílskúr: já

Eigindi eignar

Tegund Parhús
Verð 134.900.000 kr
Fasteignamat 109.350.000 kr
Brunabótamat 93.600.000 kr
Stærð 323,4 fermetrar
Herbergi 7
Svefnherbergi 5
Baðherbergi 2
Byggingarár 1979
Lyfta nei
Bílskúr
Bílskýli nei
Garður
Skráð 21.03.2024

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it