Október 2022 - Húsnæðisverð lækkar

Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,4% í ágúst en það hafði hækkað samfellt síðustu 32 mánuðina þar á undan. Lækkunin er í takt við væntingar væntingar Greiningardeildar Húsaskjóls og skýrist fyrst og fremst af vaxtahækkunum og minna aðgengi að lánsfé.  

Heimildir: Þjóðská Íslands, HMS og Greiningardeild Húsaskjóls

Eitt skýrasta merki viðsnúnings á íbúðamarkaði undanfarna mánuði hefur einfaldlega verið aukið framboð af eignum til sölu. Um þessar mundir eru á bilinu 1300-1400 eignir til sölu á höfuðborgarsvæðinu sem er tvöfalt meira en fyrir tveimur mánuðum. Það er því ljóst að íbúðir eru að koma mun hraðar inn á markaðinn en þær seljast.

Það er þekkt að þegar samningsstaða kaupenda og seljenda snýst svona hratt getur skapast ákveðin sölutregða. Kaupendur bjóða undir ásettu verði en seljendur sætta sig ekki við tilboðin. Þetta skýrir e.t.v. hraða aukningu í framboði um þessar mundir.

Heimildir: Samtök iðnaðarins, HMS og Greiningardeils Húsaskjóls. 

Ofan á þetta bætist að það má gera ráð fyrir töluverðri aukningu í framboði á nýbyggingum á næstu mánuðum.

Íbúðaspá HMS og SI gerir ráð fyrir að rúmlega 400 nýjar íbúðir komi inn á mánuði það sem eftir lifir árs þegar horft er á landið í heild sinni sem er tvöfalt meira en í meðalmánuðinum það sem af er ári.

Peningastefnunefnd ákvað í gær að hækka vexti um 25 punkta og standa meginvextir bankans nú í 5,75%. Það sem er áhugaverðast er hins vegar ekki vaxtahækkunin heldur mjúkur tónn nefndarinnar og ummæli Seðlabankastjóra um að mögulega væri stýrivaxtahækkunarferli Seðlabankans lokið í bili.

Heimildir: Samtök iðnaðarins, HMS og Greiningardeild Húsaskjóls

Horft  fram á við er ljóst að húsnæðisverð mun halda áfram að lækka að nafnvirði á næstu mánuðum. Það skýrist af nokkrum þáttum. Fyrir það fyrsta má nefna að vísitala íbúðaverðs er 3 mánaða hlaupandi meðaltal undirritaðra kaupsamninga. Nýjasta mælingin byggir því á kaupsamningum sem voru undirritaðir í sumar og því ljóst að vaxtaáhrifin eru aðeins komin inn að hluta. Tregða seljenda til að aðlaga sig að breyttum aðstæðum hefur síðan leitt til þess að íbúðaframboð hefur tvöfaldast á tveimur mánuðum. Þannig getur markaðurinn ekki gengið til lengdar og seljendur munu á næstu mánuðum þurfa að sætta sig við nýjan veruleika. Loks má nefna að Samtök iðnaðarins og HMS spá miklu innflæði af nýbyggingum inn á markaðinn á næstu mánuðum.

Þrátt fyrir að steypan sé uppáhalds fjárfesting Íslendinga getur íbúðaverð lækkað líkt og annað eignaverð og það er einmitt það sem er framundan.

 

Halldór Kári Sigurðarson Hagfræðingur Húsaskjóls S: 856-6933 Netfang: halldork15@gmail.com