Markaðurinn er byrjaður að hreyfast aftur, verðið hefur ekki hækkað meira síðan í janúar. Eignir eru samt að seljast á afslætti að raunvirði, úrvalið hefur aldrei verið meira og nýbyggingum fækkar hratt. Það er góður gluggi núna til að kaupa.
Mesta hækkunin síðan í janúar
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,06% milli mánaða í september. Á höfuðborgarsvæðinu var hækkunin 1,42%. Síðustu þrjá mánuði hefur hækkunin verið um 0,09%, svo þetta er klár viðspyrna.

Að raunvirði er verðið enn að lækka
Síðustu tólf mánuði hækkaði íbúðaverð um 1,8% á meðan verðbólgan var 5,9%. Það er 3,9% raunlækkun og fjórtándi mánuðurinn í röð.
Úrvalið hefur aldrei verið meira
Rúmlega 4.050 íbúðir voru til sölu á höfuðborgarsvæðinu í október, 26% fleiri en í fyrra, sem þýðir meira svigrúm til að semja.
Nýbyggingum fækkar hratt
Það var aðeins byrjað á 772 íbúðum frá mars til september, það hafa ekki verið færri frá upphafi íbúðatalninga HMS. Spáin fyrir 2027 fór úr 2.700 - 3.700 íbúðum niður í 2.100 - 2.600 íbúðir. Framboðið þrengist því á næstu árum.

Stýrivextir standa í 8,00% og næsta ákvörðun er 18. nóvember. Seðlabankinn býst við að verðbólgan hjaðni nokkuð hratt á næsta ári, og þá ættu vextirnir að fylgja. Sá sem kaupir núna, meðan enn er hægt að semja, situr vel þegar það gerist.
Ef þú hefur einverjar spurningar, endilega hafðu samband í gegnum steingrimur@husaskjol.is eða síma 869-2831.

Heimildir: HMS – vísitala íbúðaverðs í september 2026 (20. október), framboð íbúða til sölu (15. október), septembertalning íbúða í byggingu (22. september); Hagstofa Íslands – vísitala neysluverðs í september 2026; Seðlabanki Íslands – yfirlýsing peningastefnunefndar 7. október 2026.