Apríl 2022 - Vextirnir sem hleyptu húsnæðisverði af stað

Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,5% í febrúar sem er um þrefalt meiri hækkun en í meðalmánuði undanfarin 7 ár. Þessi hækkun þýðir að árshækkunartakturinn er kominn upp í 22,5%.

Heimildir: Þjóðskrá Íslands og Greiningardeild Húsaskjóls

Tvær meginskýringar á þessum óhóflega verðhækkunum hafa verið gefnar hingað til, annars vegar framboðsskortur og hins vegar sögulega lágir vextir. Undirritaður telur að lágir vextir hafi haft meira að segja.

Ef litið er á gögn Þjóðskrár yfir fjölda einstaklinga sem voru kaupendur út frá þinglýstum kaupsamningum innan höfuðborgarsvæðisins má sjá að á seinni helmingi ársins 2020 og fyrri helmingi ársins 2021 var fjöldi kaupenda tæplega 16.000 manns. Það er aukning um 5.000 manns m.v. árstímabil þar á undan eða 46% aukning. Þessi gífurlega fjölgun kaupenda átti sér stað í kjölfarið á því að stýrivextir voru lækkaðir úr 2,75% niður í 1% á þremur mánuðum og nokkrum mánuðum síðar niður í 0,75%.

 

Áður en fjöldi kaupenda tók að vaxa í kjölfar vaxtalækkana stóð árshækkunartakur húsnæðisverðs á höfuðborgarsvæðinu aðeins í 3,8%.

Vissulega er ákveðinn uppsafnaður íbúðaskortur á markaðnum sem hefur verið til staðar lengi en sá skortur er ekki ástæðan fyrir stökkbreytingu á húsnæðisverði undanfarin tvö ár, sú breyting skýrist af sögulega lágum vöxtum.

Samkvæmt verðlagsmælingum Hagstofunnar er verðbólgan núna komin upp í 6,7% og áhrif af verðlagshækkunum erlendis eiga enn eftir að koma fram að miklu leyti.

Seðlabankastjóri sagði á ársfundi Seðlabankans  undir lok mars að líklega verði nauðsynlegt að hækka vexti frekar svo hægt verði að hemja verðbólgu. Líklega má sleppa líklega úr þeirri fullyrðingu en það eru varla aðrir kostir í stöðunni en að hækka vexti á meðan verðbólga er í kringum 7% og útlit fyrir að hún aukist enn frekar. Frekari vaxtahækkanir munu draga töluvert úr getu kaupenda til að halda áfram í yfirboðskapphlaupinu. Þrátt fyrir að sagan um að nánast allar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu fari yfir ásettu verði sé lífseig er vert að nefna að gögnin tala öðru máli. Fleiri íbúðir fara undir ásettu verði en yfir því þó sögulega sé hlutfall þeirra sem selst yfir ásettu verði mjög hátt, eða um 45%.

Hækkandi vextir og aukið framboð mun á næstu mánuðum kæla markaðinn og sennilegt að verðhækkana toppnum sé náð í bili. Húsnæðisverð mun þó áfram hækka vegna undirliggjandi húsnæðisskorts en ekki á sama hraða og undanfarið.

Halldór Kári SigurðarsonHagfræðingur Húsaskjóls - S: 856-6933 Netfang:halldork15@gmail.com