Piparkökuhúsakeppni Húsaskjóls

Piparkökuhús

Bakar þú piparkökuhús fyrir jólin? Taktu þátt í piparkökuhúsakeppni Húsaskjóls með því að senda okkur mynd af húsinu þínu. Glæsileg verðlaun í boði!


Keppt er í tveimur flokkum:
Barnaflokkur: 0 - 14 ára
Almennur flokkur: 15 ára og eldri

Báðir flokkar fá vegleg verðlaun:
1. sæti: 30.000 kr. gjafabréf í Smáralind
2. sæti: 20.000 kr. gjafabréf í Smáralind
3. sæti: 10.000 kr. gjafabréf í Smáralind

Þátttökureglur:
  • Bakaðu og skreyttu piparkökuhús
  • Taktu fallega mynd af húsinu
  • Fylltu út formið hér fyrir neðan, veldu keppnisflokk og sendu inn myndina

Tekið er á móti innsendingum frá 18. október til og með 15. desember 2026 kl 00:00.


Vinsamlegast athugaðu eftirfarandi


Kosning


Þann 15. desember birtum við innsend piparkökuhús á samfélagsmiðlum Húsaskjóls, í sérstakri færslu fyrir hvorn keppnisflokk.


Hvert piparkökuhús fær sitt númer og þú kýst svo þitt uppáhald með því að skrifa númerið í athugasemd við færsluna.


Hver einstaklingur má greiða eitt atkvæði i hvorum flokki, óháð samfélagsmiðli.


Atkvæði á Facebook og Instagram verða talin saman og þrjú atkvæðahæstu húsin í hvorum flokki hljóa verðlaun.


Kosningin stendur yfir 15.–30. desember og sigurvegarar verða kynntir 14. janúar.