74.700.000 kr. - 120,0 ferm. - 3 herbergi Fjölbýlishús - 112 Reykjavík














































HÚSASKJÓL OG ÁSDÍS RÓSA LÖGFRÆÐINGUR OG FASTEIGNASALI KYNNA Í EINKASÖLU: Mikið endurnýjaða 3ja herb íbúð á 2. hæð við Hrísrima 3, Grafarvogi. 2 Sv. herb. Þvottahús innan íbúðar og stæði í bílageymslu. Fjölskylduvænt hverfi.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR
Skv HMS er eignin skráð 120 fm en þar af er stæði í bílageymslu 18,7 fm.
Komið er inn í stóra forstofu/hol með góðum fataskáp.
Eldhús er endurnýjað með nýlegri hvítri innréttingu og borðkrók.
Stofa er björt og rúmgóð og gengið út á svalir.
Svefnherbergisgangur er með harðparketi á gólfi.
Þvottahús er flísalagt með vélum í vinnuhæð.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, walk in sturta og góð innrétting.
Hjónaherbergi er rúmgott með skápum eftir endilöngu.
Barnaherbergi er með skáp.
Í kjallara er stæði í bílageymslu og rúmgóð geymsla.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum, sjá upplýsingabækling.
Rimahverfi er vinsælt hverfi fyrir fjölskyldufólk, stutt í skóla og ýmsa þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir lögfræðingur og löggiltur fasteignasali netfang: asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 8957784
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Fjölbýlishús |
| Verð | 74.700.000 kr. |
| Fasteignamat | 76.450.000 kr. |
| Brunabótamat | 69.640.000 kr. |
| Stærð | 120,0 fermetrar |
| Herbergi | 3 |
| Svefnherbergi | 2 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 1991 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | já |
| Garður | já |
| Skráð | 08.09.2026 |