Eyjabakki 30 - 57.900.000 kr - 87,2 ferm. - 3 herbergi

Fjölbýlishús - 109 Reykjavík

Lýsing eignar

HÚSASKJÓL KYNNIR:

***NÝTT Á SKRÁ***
Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Mikið endurnýjaða og fallega 3ja herbergja íbúð á
fyrstu hæð í góðu fjölbýlishúsi við Eyjabakka 30 með hellulögðum sérafnotareit til vesturs. Blokkin hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum árin. Einnig er rúmgóður sameiginlegur garður sem búið er að endurnýja að öllu leiti. Íbúðin og gluggar eru nýmáluð. Eignin getur verið laus við kaupsamning.

Íbúðin er skráð 87,2 fm að stærð og þar af er rúmgóð geymsla með glugga í sameign sem er 12,2 fm að stærð sem hægt er að nota sem þriðja herbergið. 
 
Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is 

Núverandi skipulag eignarinnar;
Forstofa, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús innan íbúðar, eldhús, stofa-og borðstofa sem er bjart rými með aðgengi út á hellulagðan sérafnotareit til vesturs. Í sameign er 12,2 fm geymsla með glugga sem hægt er að nota sem þriðja svefnherbergið.   

        Nánari lýsing á eign:
Forstofa: Endurnýjaður tvöfaldur fataskápur með háglans hvítum hurðum og nýlegt eikarparket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Er rúmgott bjart og er eitt opið rými  með útgengi út á hellulagðan sérafnotareit sem snýr til vestur. Eikarparket á gólfi.
Eldhús: Endurnýjuð hvít háglans eldhúsinnrétting með góðu skápa-og borðplássi. Nýr eldhúsvaskur og blöndunartæki. Nýtt keramik helluborð og ofn í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir að hægt sé að sitja við borðplötuna í eldhúsinnréttingunni. Parketdúkur á gólfi.
Hjónaherbergi: Endurnýjaðir rúmgóðir fataskápar með háglans hvítum hurðum, Parketdúkur á gólfi. 
Svefnherbergi: Tvöfaldur hvítur fataskápur, parketdúkur á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með rúmgóðri walk-inn sturtu, hvít innrétting og speglaskápar. Endurnýjuð vifta á baði.  
Þvottahús: Þvottahús er innan íbúðar með dúk á gólfi.
Geymsla: Rúmgóð geymsla er í sameign sem er 12,2 fm með glugga og því möguleiki að nota það sem þriðja svefnherbergið. 
Sameign: Hjóla-og vagnageymsla. þurrkherbergi.

Viðhaldssaga:
-Nýlega búið að sprunguviðgera og mála blokkina alla að utan og glugga.
-2022 skipt um þá glugga sem þurfti á að halda.
-Búið að klæða blokkina að hluta.
-2015 var skipt um þakið.
-Nýlega búið að gera við þakkantinn.
-2011 dren endurnýjað.
-Sameiginlegur garður hellulagður.
-Ný leiktæki í garði.
-Nýlegt teppi á stigagangi.
-Allar hurðar inn í íbúðir eru nýlegar eikar eldvarnarhurðar. 
-Skipt um hurðar á ruslageymslu.

Hér er um að ræða mikið endurnýjaða og fallega 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérafnotareit til vesturs í góðu fjölbýlishúsi í Bökkunum í Breiðholtinu sem fengið hefur einstaklega gott viðhald gegnum tíðina. Íbúðin og gluggar er öll nýmáluð. Sameign er öll mjög snyrtileg og nýlegt teppi á stigagangi. Rúmgóður sameiginlegur garður með leiktækjum sem er nýlega endurnýjaður. Góð og barnvæn staðsetning þar sem stutt er í skóla-og leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu. Einnig er stutt í hina frábæru útivistarperlu Elliðaárdalinn. 

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls


Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

87,2 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 57.900.000 kr
Fasteignamat 39.100.000 kr
Brunabótamat 40.550.000 kr
Stærð 87,2 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1970
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður nei
Skráð 01.07.2023

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it