Fjölbýlishús - 101 Reykjavík
HÚSASKJÓL KYNNIR:
Falleg 2ja herbergja íbúð miðsvæðis í Reykjavík, Leifsgötu 18. Íbúðin er skráð 65,1 fm, þar af er 4,1 fm geymsla.
Húsið stendur við rólega götu þar sem maður fær frið fyrir umferðarþunga, en samt mjög miðsvæðis með stutt í allt sem þarf. Í nágrenninu eru bæði kaffihús og bakarí, meðal annars Roasters, og þægilegt nærsamfélag með góðum nágrönnum og virkum Facebook-hópi. Svæðið er fallegt og lifandi með bæði þjónustu og útivist innan seilingar, og hlýlegt andrúmsloft og tengsl í götunni skapa einstaka stemningu. Útsýnið yfir götuna er ómetanlegt, með Hallgrímskirkju á sumrin og norðurljósunum á veturna. Þægindin sem fylgja því að búa miðsvæðis en í rólegheitum eru mikil, auk þess sem auðvelt er að leigja út eignina og þannig skapa sér svigrúm til að ferðast meira eða standa straum af stærri útgjöldum.
FASTEIGNAMAT 2026 VERÐUR: 57.100.000 KR.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR
Nánari lýsing:
Að sögn fyrri seljanda hefur eftirfarandi verið endurnýjað:
Samantekt: Flott íbúð á jarðhæð í góðu húsi við miðbæðinn. Mjög góð íbúð fyrir fyrstu kaupendur.
Upplýsingar veitir:
Steingrímur Þ. Ágústsson, löggiltur fasteignasali, í síma 869-2831 eða steingrimur@husaskjol.is
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Tegund | Fjölbýlishús |
Verð | 57.700.000 kr |
Fasteignamat | 51.200.000 kr |
Brunabótamat | 31.950.000 kr |
Stærð | 65,1 fermetrar |
Herbergi | 2 |
Svefnherbergi | 1 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1935 |
Lyfta | nei |
Bílskúr | nei |
Bílskýli | nei |
Garður | já |
Skráð | 18.08.2025 |