Álalækur 11 - 44.900.000 kr. - 63,9 ferm. - 1 svefnherbergi

Fjölbýlishús - 800 Selfoss

Lýsing eignar

Einstaklega stílhrein og falleg tveggja herbergja endaíbúð í nýlegu lyftuhúsi með sérinngangi af svölum. Næg bílastæði er við húsið. Eignin er vel staðsett og stutt í alla þjónustu. Grunnskóli og leikskóli í göngufæri. 

Eignin er samtals 63,9m² og skiptist á eftirfarandi hátt:
Íbúð 61,5m²
Sérgeymsla í sameign 2,4m²
Forstofa/gangur, svefnherbergi, baðherbergi, samliggjandi, eldhús/stofa/borðstofa, sérgeymsla.

Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi. 
Forstofugangur er parketlagður og liggur að öllum rýmum íbúðarinnar. 
Svefnherbergi er á hægri hönd frá gangi. Herbergið er rúmgott með gluggum í tvær áttir, parketi á gólfi og góðum fataskápum. 
Baðherbergið er rúmgott með flísum á gólfi, upphengdu salerni með flísum á kassa, rúmgóðum innréttingum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofni, og sturtu með flísum á gólfi og veggjum. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Stofa/borðstofa/eldhús eru samliggjandi. Rýmið er rúmgott og bjart með parket á gólfi, góðri eldhúsinnrétinng með innfelldum ofni, helluborði og háfi. Tengi fyrir uppþvottavél.     

Upplýsingar úr þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu:

Eignahluti 02-0205 Fasteignanúmer F2504974 
Birt stærð séreignar 63,9 m² 
Eignin er 61,5 fermetra íbúð á 2. hæð (rými 0205) 
ásamt 2,4 fermetra geymsla (rými 0113). 
Eigninni fylgir hlutdeild í sameign allra í matshluta 02 og lóð. 
Åsamt svölum merktar 0211, 9,4 m². 
Eignarhald Notkun: Íbúð 0205
Birt flatarmál m² 63,9 
Hlutdeild í húsi, 7,27% 
Hlutdeild í lóð 3,63% 
Hlutdeild í hitakostnaði 7,31%
 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

63,9 m2 1 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eiginleikar eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 44.900.000 kr.
Fasteignamat 45.650.000 kr.
Brunabótamat 36.500.000 kr.
Stærð 63,9 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 2019
Lyfta
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 01.04.2026

Drög að tilboði í eign

Gera tilboð

Deila eign



Pin it