84.900.000 kr. - 95,5 ferm. - 3 herbergi Fjölbýlishús - 109 Reykjavík




































































***NÝTT Á SKRÁ-OPIÐ HÚS VERÐUR HALDIÐÍ ÁRSKÓGUM 6 Á MÁNUDAGINN 13.JÚLÍ KL.12:30-13:00 ***
Húsakjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: fallega og bjarta 3ja herbergja endaíbúð á sjöundu hæð með góðu útsýni og yfirbyggðum vestursvölum og stæði í bílageymslu að Árskógum 6 í Reykjavík fyrir 60 ára og eldri.
Íbúðin er skráð skv. fasteignamati HMS 95,5 fm að stærð og þar af er geymsla í sameign 6,1 fm að stærð.
Eignin skiptist í forstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi sem er með góðri þvottaaðstöðu innaf, eldhús og mjög rúmgott og bjart alrými sem skiptist í stofu-og borðstofu. Sér geymsla er í sameign og stæði í lokaðri bílageymslu.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Í OPIÐ HÚS OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING UM EIGNINA
Nánari lýsing á eign:
Gólfefni íbúðarinnar eru eikarparket og vínildúkur.
Forstofa: Rúmgóð með tvöföldum fataskáp úr beiki sem nær upp í loft.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með beikiköntum, efri-og neðri skápar með flísum á milli, Endurnýjuð eldhústæki, spanhelluborð, háfur og ofn í vinnuhæð. Ísskápur og uppþvottavél fylgja einnig með.
Stofa-og borðstofa: Er rúmgott og bjart alrými með stórum gluggum á tvo vegu og útgengi úr stofu út á yfirbyggðar vestursvalir sem eru með fallegu útsýni yfir borgina, út á sjó og til fjalla.
Svefnherbergin eru 2: Rúmgóð með góðum fataskápum úr beiki sem ná upp í loft. Minna herbergið sem er út frá forstofunni er með gólfsíðum hornglugga sem er með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Endurnýjuð innrétting, spegill með innbyggðri lýsingu, vaskur innbyggður í borðplötu sturtuklefi, endurnýjað upphengt salerni. Flísar á veggjum og vínildúkur á gólfi. Innaf baðherberginu er þvottahús með hvítri innréttingu sem er með efri og neðri skápum, skolvaski og þvottasnúrum.
Geymsla: Er í sameign sem er með hillum.
Stæði í lokaðri bílageymslu: Vel staðsett bílastæði sem er með tengingu fyrir rafmagnsbíla. Þvottaaðstaða er fyrir bíla.
Hér er um er að ræða bjarta og rúmgóða 3ja herbergja útsýnisíbúð á sjöundu hæð með yfirbyggðum vestur svölum og stæði í lokaðri bílageymslu í húsi sem hefur verið vel viðhaldið sem er ætlað fyrir 60 ára og eldri sem eru félagsmenn í Félagi eldri borgara. Húsvörður er starfandi í húsinu og sameignin er mjög snyrtileg. Mikil þjónusta er í boði í húsinu og þar er sameiginlegur matsalur á jarðhæðinni sem býður upp á heitan mat í hádeginu. Ýmis félagsstarfsemi fer einnig fram á jarðhæðinni auk þess sem hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa eru starfræktar þar. Einnig er rúmgóður veislusalur á jarðhæðinni sem hægt er að leigja fyrir ýmis tækifæri. Góð aðkoma er á lóðina sem er fullfrágengin og með nægum bílastæðum og púttvelli. Stutt er í alla helstu verslun og þjónustu í Mjóddinni eins og matvöruverslun, bakarí, bókabúð, hreinsun, apótek og heilsugæslu svo eitthvað sé nefnt.
Hér má nálgast frekari upplýsingar um Frístunda– og félagsstarf í Árskógum
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Fjölbýlishús |
| Verð | 84.900.000 kr. |
| Fasteignamat | 75.150.000 kr. |
| Brunabótamat | 56.410.000 kr. |
| Stærð | 95,5 fermetrar |
| Herbergi | 3 |
| Svefnherbergi | 2 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 1992 |
| Lyfta | já |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | já |
| Garður | já |
| Skráð | 09.07.2026 |