Fjölbýlishús - 170 Seltjarnarnes
Ef þú vilt útsýni, þá er þetta eign fyrir þig
Húsaskjól fasteignasala og Anna Laufey Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu glæsilega og vel skipulagða 3ja herb. íbúð á 7. hæð í fjöleignarhúsi með lyftu og bílastæði í bílageymslu við Austurströnd 12 Seltjarnarnesi. Íbúðin er sérlega björt og glæsileg með stórkostlegu útsýni. Tvö svefnherbergi, opið rými með eldhúsi og stofu, hol/forstofu ásamt baðherbergi.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Með fataskáp og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Er í opnu rými með eldhúsi, fallegir gluggar og út gengi út á svalir til norð-austur með stórkostlegu útsýni til fjalla. Á gólfi er parket.
Eldhús: Opið við stofu/borðstofu, falleg sérsmíðuð innrétting úr eik, harðplast á borðum, helluborð, bakaraofn og uppvöskunarvél.
Baðherbergi: Rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, baðinnrétting með vaski, upphengt wc, sturta og handklæða ofn.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er bjart og fallegt með góðum fataskápum og parkert á gólfi.
Barnaherbergi: Rúmgott barnaherbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Þvottaherbergi: Er í sameign á sömu hæð með þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Eigninni fylgir 5,8 fm sér geymsla á annari hæð. Hjóla og vagnageymsla er einnig á annari hæð.
Bílastæði: Eigninni fylgir sér bílastæði í bílageymslu á fyrstu hæð merkt 704
Frekari upplýsingar veitir Anna Laufey Sigurðardóttir, löggiltur fasteignasali, sími 696-5055 netfang anna@húsaskjol.is
Hér er um að ræða góða íbúð á Seltjarnarnesi, í næsta nágrenni Grótta, vinsæl útivistarsvæði, fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjávarsíðuna ásamt öflugu skóla- og íþróttastarfi. Örstutt í verslanir. Seltjarnarnes laugin og golfvöllurin í næsta nágrenni. Í sama húsi er rakarastofa og bakarí er staðsett í næsta húsi.
Viðgerðir og viðhald sl. ára:
2017 Baðherbergi endurnýjað, veggur í eldhúsi tekinn niður og sett nýtt eldhús.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Tegund | Fjölbýlishús |
Verð | 82.000.000 kr |
Fasteignamat | 62.300.000 kr |
Brunabótamat | 45.850.000 kr |
Stærð | 85,8 fermetrar |
Herbergi | 3 |
Svefnherbergi | 2 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1985 |
Lyfta | já |
Bílskúr | nei |
Bílskýli | já |
Garður | já |
Skráð | 31.03.2025 |