Eyjabakki 5 - 51.700.000 kr - 70,1 ferm. - 2 herbergi

Fjölbýlishús - 109 Reykjavík

Lýsing eignar

HÚSASKJÓL OG ÁSDÍS RÓSA LÖGFRÆÐINGUR OG LGF KYNNA Virkilega fallega og rúmgóða 70,1 fm 2ja herb íbúð á 2. hæð við Eyjabakka 5. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á undanförnum árum. Tengi fyrir þvottavél innan íbúðar og hleðslustöðvar á planinu.

Fasteignamat 2026 verður: 50.400.000.-

Komið er inn í gott hol með flísum og fatahengi.

Baðherbergi er með góðri walk-in sturtu og hvítri innréttingu.

Svefnherbergið er mjög rúmgott með skápum eftir endilöngu.

Eldhús er nýlega endurnýjað með hvítri innréttingu á 2 veggjum og tengi fyrir uppþvottavél og þvottavél. Borðkrókur undir glugganum.

Stofan er rúmgóð og björt með stórum gluggum og gengið út á stórar svalir.

Í sameign er hjólageymsla, sameiginlegt þvottahús og sér geymsla.

Á undanförnum árum hefur húsið fengið ýmislegt viðhald:

Nýtt teppi og rofar á stigagangi

Skipt hefur verið um hluta af gluggum í húsinu, þó ekki í þessari íbúð.

Eyjabakkinn er staðsettur við Elliðaárdalinn svo stutt er í frábært útivistarsvæði og alla þjónustu í Mjóddinni. Sameiginleg bílastæði á lóð.

 Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala netfang:  asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 895-7784

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

70,1 m2 1 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eiginleikar eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 51.700.000 kr
Fasteignamat 45.700.000 kr
Brunabótamat 36.050.000 kr
Stærð 70,1 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 1971
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 01.12.2025

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it