Fannahvarf 1 - 86.000.000 kr - 102,3 ferm. - 3 herbergi

Fjölbýlishús - 203 Kópavogur

Lýsing eignar

Virkilega góð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og sérpalli við Fannahvarf 1, 203 Kópavogur. Íbúðin er sérstaklega hönnuð með allt aðgengi fatlaðra í huga og fylgir henni stæði beint fyrir utan íbúð. Íbúðin er skráð 102,3 fm.

Smelltu hér til að skoða teikningar af eigninni

Lýsing eignar:  Gengið er inn um sérinngang beint frá stæði og komið inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Geymsla er innaf forstofu. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, handklæðaofn, upphengt salerni og gluggi. Þvottahús er með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og snúrur. 2 svefnherbergi, bæði með parketi og skápum. Eldhús og stofa er opið rými og þaðan er gengið út á sérafnotarétt sem snýr í suður með miklu útsýni. Eldhúsinnrétting er L-laga með efri og neðri skápum ásamt eyju. Í sameign er sameiginleg hjóla og vagnageymsla.

Á hvað eru fjölbýli í Kópavogi að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir alla kaupsamninga í Kópavogi
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

102,3 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eiginleikar eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 86.000.000 kr
Fasteignamat 69.750.000 kr
Brunabótamat 49.100.000 kr
Stærð 102,3 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 2005
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 10.12.2025

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it