98.700.000 kr. - 121,6 ferm. - 4 herbergi Fjölbýlishús - 201 Kópavogur
Húsaskjól og Pétur Ísfeld, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu einstaka útsýnisíbúð sem er björt, vel skipulögð og mikið endurnýjuð, fjögurra herbergja íbúð á sjöundu hæð í Glósölum 7 í Kópavogi.
Um er að ræða glæsilega eign fyrir þá sem vilja fallegt útsýni, gott skipulag og fjölskylduvæna staðsetningu í vinsælu hverfi. Íbúðin er samtals skráð 121,6 fm, þar af er íbúðarrými 114,8 fm og sérgeymsla 6,8 fm. Yfirbyggðar svalir eru 7,7 fm og sérmerkt stæði í bílageymslu er 25,8 fm.
Frá íbúðinni nýtur einstaks og víðáttumikils útsýnis yfir stóran hluta höfuðborgarsvæðisins. Af svölum sést meðal annars í átt að Heiðmörk, Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Reykjavík, Suðurnesjum og Akranesi, auk þess sem falleg sýn er til Reykjavíkur og Esjunnar frá hornglugga í stofu og svefnherbergjum.
Íbúðin skiptist í rúmgott forstofu- og sjónvarpsrými, bjart opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, þrjú góð svefnherbergi, nýlega endurnýjað baðherbergi með þvottaaðstöðu, yfirbyggðar svalir og sérgeymslu. Eigninni fylgir einnig stæði í bílageymslu.
Nánari lýsing
Forstofu- og sjónvarpsrými: Komið er inn í snyrtilega forstofu af stigagangi. Rýmið sameinar forstofu og notalegt sjónvarps- eða seturými með góðu plássi fyrir hornsófa og hægindastól. Vandaður þrefaldur fataskápur er staðsettur bak við hurð og tryggir gott geymslurými. Ljósbrúnar flísar eru í anddyri en ljóst parket í sjónvarpsrými sem skapar hlýlegt og samræmt yfirbragð.
Alrými – eldhús, stofa og borðstofa: Mjög bjart og opið alrými þar sem eldhús, stofa og borðstofa mynda samfellda og fallega heild. Þrír stórir gluggar, þar á meðal glæsilegur horngluggi, ásamt útgengi á yfirbyggðar svalir, hámarka birtu og gera stórfenglegt útsýnið að hluta af daglegu lífi. Rýmið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og er án efa hjarta heimilisins.
Eldhús: Stílhreint og vel skipulagt eldhús með miklu skápa- og vinnuplássi. Hvítar skáphurðir og skúffur ásamt dökkum viðarborðplötum skapa nútímalegt og hlýlegt yfirbragð. Eldhúsið er útbúið stórum vaski, helluborði og ofni í vinnuhæð auk þess sem gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðu plássi fyrir hjónarúm og náttborð beggja vegna. Stór og vandaður fataskápur nær eftir heilum vegg og tryggir mikið geymslurými. Stór gluggi með opnanlegu fagi gefur góða birtu og fallegt útsýni. Ljóst parket á gólfi.
Barnaherbergi I: Mjög rúmgott og bjart herbergi með góðu plássi fyrir rúm, skrifborð, kommóðu og fataskáp. Stór gluggi með opnanlegu fagi. Ljóst parket á gólfi.
Barnaherbergi II: Bjart og rúmgott herbergi með svipuðu skipulagi og stærð og barnaherbergi I. Gott pláss fyrir rúm, skrifborð og geymslulausnir. Ljóst parket á gólfi.
Baðherbergi / þvottahús: Vel skipulagt og nýlega endurnýjað baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Góð innrétting með miklu skápaplássi, rúmgóðum skúffum undir vaski og vel lýstum speglaskáp. Upphengt salerni, rúmgóður sturtuklefi og gluggi með opnanlegu fagi auka þægindi. Steingráar flísar eru á gólfi og Fibo-bađplötur á veggjum.
Svalir: Sólríkar yfirbyggðar vestursvalir með útgengi frá alrými. Þar er tilvalið að njóta útiveru, grilla og njóta stórbrotins útsýnis og kvöldsólar.
Bílastæði í bílageymslu: Eigninni fylgir sérmerkt stæði í snyrtilegri og vel skipulagðri bílageymslu.
Sameign: Sérgeymsla er í sameign ásamt rúmgóðri og snyrtilegri hjóla- og vagnageymslu á jarðhæð með góðu skipulagi og aðgengi. Sameign hússins er öll einstaklega snyrtileg og vel við haldið. Nýlega var öll sameign máluð og tvær lyftur eru í húsinu. Lóðin er einnig vel frágengin og næg bílastæði eru fyrir framan húsið.
Staðsetning: Eignin er staðsett í rólegu og fjölskylduvænu Salahverfinu í Kópavogi þar sem stutt er í leikskólana Fífusali og Rjúpnahæð, Salaskóla, Salalaugina, verslanir, þjónustu og fjölbreytta útivist. Hverfið er sérstaklega vinsælt meðal fjölskyldna vegna góðs aðgengis, öryggis og nálægðar við alla helstu þjónustu.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Fjölbýlishús |
| Verð | 98.700.000 kr. |
| Fasteignamat | 90.250.000 kr. |
| Brunabótamat | 69.490.000 kr. |
| Stærð | 121,6 fermetrar |
| Herbergi | 4 |
| Svefnherbergi | 3 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 2001 |
| Lyfta | já |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | já |
| Garður | já |
| Skráð | 28.05.2026 |