Grænaborg 6

59.900.000 kr. - 92,2 ferm. - 4 herbergi Fjölbýlishús - 190 Vogar

Lýsing eignar

HÚSASKJÓL KYNNIR:

Til sölu er 92,2 fm 4ra herbergja íbúð með sérinngangi á 2. hæð við Grænuborg 6, 190 Vogum.

Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn skráður 92,2 fm. Svalir telja 4,4 fm.

Húsið er byggt árið 2022 og hannað af hinu þekkta arkitektastofu ARKÍS. Eignin er með sérinngangi og frá svölunum er fallegt útsýni yfir hafið.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SENDA INN TILBOÐ

Lýsing eignar:

Góð staðsetning í vaxandi hverfi í Vogunum. Aðgengi að hleðslustöð og aðeins um 20 mín akstur inní Hafnarfjörð.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR

Skipulag og rými:

Eignin skiptist í anddyri, hol, baðherbergi með þvottaaðstöðu, 3 svefnherbergi, eldhús og stofu. Úr stofu er útgengt á svalir.

Nánari lýsing

Forstofa með fataskáp og hengi, flísar á gólfi. 

Eldhús opið inní stofu, hvít snyrtileg innrétting með eyju, í eyjunni er helluborð og bakaraofn. Tengi fyrir uppþvottavél. 

Stofa rúmgóð og björt stofa með harðparketi á gólfi. Útgengt á svalir. 

Hjónaherbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi. 

Tvö barnaherbergi annað með skápum. Harðparket á gólfi. 

Baðherbergi með upphengdu salerni, walk-in sturtu og handklæðaofn. Flísar á gólfi og hluta veggja. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Íbúðinni tilheyrir fastanúmer 251-6000 (eign merkt 02-02) ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi, svo og rúmgóð hjólageymsla í sameign.

Húsið Grænuborg 6. [...]

Nærumhverfi og þjónusta Eignin er staðsett í vaxandi hverfi í Vogunum. Stóru-Vogaskóli (grundskóli) og leikskólinn Suðurvellir eru í þægilegri fjarlægð frá húsinu. AVogar bjóða upp á frábæra útivistarmöguleika, fallega náttúru við sjávarsíðuna og sterka samfélagskennd. Staðsetningin er einnig mjög hentug fyrir þá sem starfa á Reykjanesinu eða á höfuðborgarsvæðinu, með góðum samgöngum til og frá bænum.

Allar nánari upplýsingar veitir Dominika Anna Madajczak löggiltur fasteignasali í email: dominika@husaskjol.is eða í síma 848-8454.

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

92,2 m2 3 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eiginleikar eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 59.900.000 kr.
Fasteignamat 58.700.000 kr.
Brunabótamat 56.150.000 kr.
Stærð 92,2 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 2023
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður nei
Skráð 02.10.2026

Deila eign



Pin it