Fjölbýlishús - 108 Reykjavík
















































*** SÖLUSÝNING: HÁAGERÐI 71 ÍBÚÐ 201, MÁNUDAGINN 09. FEBRÚAR 2026 KL 17:00-17:30. ÁSDÍS ÓSK VALSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 8630402 EÐA EMAIL: ASDIS@HUSASKJOL.IS ***
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Háagerði 71 Íbúð 201.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.
Eign sem kemur á óvart. 4ra herbergja (3 svefnherbergi) risíbúð við Háagerði 71, 108 Reykjavík. Hérna sannast máltækið: “Margur er knár þótt hann sé smár” þar sem þrátt fyrir að vera eingöngu skráð 56.7 fm þá eru 3 svefnherbergi í íbúðinni. Hver fermeter nýtist því gífurlega vel enda gólfflötur mun stærri en skráðir fermetar segja til um. Íbúðin er endaíbúð og með miklu útsýni.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR
Lýsing eignar: Gengið er inn um sameiginlegan inngang og upp stiga. Komið er inn í hol með harðparketi á gólfi og þaðan er opið inn í stofu með útgengi á suðursvalir. Eldhúsið er með L-laga innréttingu, efri og neðri skápar, borðkrókur og tengi fyrir þvottavél, borðkrókur í eldhúsi, flísar á gólfi, gluggar með útsýni yfir Esjuna. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, yfir baðherbergi er geymsluloft. 3 svefnherbergi í íbúðinni öll með harðparketi og hjónaherbergi með skápum. Eitt herbergið er skráð sem geymsla á teikningu.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús og óskráður geymsluskápur. Sameiginlegur garður.
Virkilega vel staðsett íbúð miðsvæðis þar sem stutt er í allar áttir.
Að sögn fyrri seljanda hefur eftirfarandi verið endurnýjað:
2022-2023: Allir gluggar nema í stofu.
2023: Þak endurnýjað, skipt um þak, sperrur, klæðningu og þakrennur
2022-2023 var hitagrind í kjallara yfirfarin og lagfærð
2025: Rafmagnstafla og vírar endurnýjað í sameign
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Fjölbýlishús |
| Verð | 59.900.000 kr. |
| Fasteignamat | 54.300.000 kr. |
| Brunabótamat | 32.600.000 kr. |
| Stærð | 56,7 fermetrar |
| Herbergi | 4 |
| Svefnherbergi | 3 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 1960 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | nei |
| Garður | já |
| Skráð | 05.02.2026 |