55.400.000 kr. - 111,2 ferm. - 5 herbergi Einbýlishús - 233 Hafnir


























































Einstök eign við Hafnagötu 10, Hafnir.
Einbýlishús á tveimur hæðum á frábærum stað við Hafnagötu 10 í Höfnum. Eignin er skráð 111,2 fm þar sem staðsetningin og sjávarútsýnið skapa einstakt umhverfi.
Eignin býður upp á mikla möguleika og hentar vel fyrir þá sem leita að rólegu umhverfi eða vilja móta eigið heimili á frábærum stað við ströndina.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA MYNDBAND AF HAFNAGÖTU 10
SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA
SMELLTU HÉR TIL AÐ SENDA INN TILBOÐ
Lýsing eignar:
Eignin er á tveimur hæðum, á neðri hæð er þvottahús, baðherbergi, eldhús og stofa og í risi eru 4 svefnherbergi.
Neðri hæð: Forstofa: Flísalögð með fataskáp. Stofa: Rúmgóð stofa með nýlegu harðparketi og borðstofu við hlið eldhúss.Snjallljósakerfi frá IKEA fylgir og píanó getur einnig fylgt með. Eldhús: Endurnýjað eldhús með hvítri innréttingu, viðarborðplötum, innbyggðum ísskáp, frysti og uppþvottavél. Örbylgjuofn og bakarofn í vinnuhæð. Auka rafmagnsofn. Baðherbergi: Mikið endurnýjað baðherbergi með tvöfaldri sturtu (epoxy á gólfi og veggjum), baðkari, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Nýtt niðurfall.
Þvottahús og geymsla: Staðsett inn af forstofu með flísum á gólfi.
Efri hæð (Ris): Hol: Opið rými sem nýtist sem leikherbergi eða vinnuaðstaða. Útgengt á svalir. Svefnherbergi: Hjónaherbergi með fataherbergi ásamt þremur barnaherbergjum (samtals 4 herbergi á efri hæð). Lítill fataskápur. Gólf eru máluð á spónarparketi.
Lóð og nærumhverfi:
Garðurinn er með palli og brúnni þar sem hægt er að sitja og njóta útsýnisins yfir sjóinn. Beint aðgengi er að fjörunni.
Ástand og endurbætur:
Eldhús og baðherbergi voru endurnýjuð á síðustu árum. Þakjárn var endurnýjað árið 2023 (bárujárn með tvöfaldri steinull og pappa). Húsið þarfnast nokkurs viðhalds að utan, meðal annars á gluggum, sem gefur nýjum eiganda tækifæri til að klára eignina eftir sínum óskum.
Staðsetning og aksturstími:
Reykjanesbær / Keflavík: Um 10-12 mínútur., Keflavíkurflugvöllur: Um 15 mínútur., Reykjavík: Um 50 mínútur.
Þetta er frábært fjölskylduhús sem býður upp á mikla mögulega. Fjölskylduvænt hverfi og nágrenni við sjóinn. Garðurinn er sælureitur á sumrin og útsýnið setur mikinn svip á húsið.
Allar nánari upplýsingar veitir Dominika Anna Madajczak, löggiltur fasteignasali í netfangið: dominika@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 848-8454
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Einbýlishús |
| Verð | 55.400.000 kr. |
| Fasteignamat | 43.850.000 kr. |
| Brunabótamat | 51.900.000 kr. |
| Stærð | 111,2 fermetrar |
| Herbergi | 5 |
| Svefnherbergi | 4 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 1980 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | nei |
| Garður | já |
| Skráð | 08.08.2026 |