114.900.000 kr. - 139,6 ferm. - 4 herbergi Fjölbýlishús - 210 Garðabær


























































Húsakjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fallega og vel skipulagða 4ja herbergja endaíbúð á annarri hæð með mjög rúmgóðum suðursvölum í vinsælu hverfi í Akralandinu við Hallakur 4b í Garðabænum. Búið er að endurnýja eldhúsið, baðinnréttingu og innréttingu í þvottahúsi.
Íbúðin er skráð skv. fasteignamati HMS 139,6 fm að stærð og þar af er geymsla í sameign 14,6 fm að stærð.
Eignin skiptist í forstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og mjög rúmgott og bjart alrými sem skiptist í stofu, borðstofu og sjónvarpsrými. Sér þvottahús innan íbúðar og sér geymsla er í sameign.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Nánari lýsing á eign:
Gólfefni íbúðarinnar eru eikarparket og flísar.
Forstofa: Fataskápur úr eik sem nær upp í loft.
Eldhús: Endurnýjuð hvít eldhúsinnréttingin með efri-og neðri skápum og góðu skápaplássi. Borðplatan er úr Kvartsstein og hægt að sitja við hana að hluta. Endurnýjuð vönduð eldhústæki, spanhelluborð, vifta, tveir ofnar í vinnuhæð, ofn-og örbylgjuofn. Innbyggður ísskápur og frystir.
Stofa, borðstofa og sjónvarpsrými: Er mjög rúmgott og bjart alrými með stórum gluggum og útgengi úr stofu út á um 12 fm suðursvalir sem eru með fallegu útsýni.
Svefnherbergin eru 3: Öll mjög rúmgóð með góðum fataskápum úr eik sem ná upp í loft.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, endurnýjuð hvít innrétting með spegla efriskápum, vaskur ofan á borðplötu sturtuklefi, baðkar og upphengt salerni. opnanlegur gluggi.
Þvottahús: Sér þvottahús er innan íbúðar með nýlegri hvítri innréttingu þar sem þvottavél og þurrkari eru í vinnuhæð, gott skápapláss, skolvaskur og opnanlegur gluggi.
Geymsla: Mjög rúmgóð geymsla er í sameign sem er 14,6 fm að stærð.
Sameign: Hjóla-og vagnageymsla.
Hér er um að ræða einstaklega fallega og rúmgóða 4ja herbergja búð á annarri hæð í litlu 6 íbúða fjölbýlishúsi þar sem eru einungis tvær íbúðir á hæð með rúmgóðum suðursvölum í vinsælu og barnvænu hverfi í Akralandinu í Garðabænum. Leik-og grunnskóli er í göngufæri ásamt matvöruvöruverslun og bakaríi.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Fjölbýlishús |
| Verð | 114.900.000 kr. |
| Fasteignamat | 102.950.000 kr. |
| Brunabótamat | 78.050.000 kr. |
| Stærð | 139,6 fermetrar |
| Herbergi | 4 |
| Svefnherbergi | 3 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 2006 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | nei |
| Garður | já |
| Skráð | 10.06.2026 |