Fjölbýlishús - 105 Reykjavík
2ja herbergja herbergja íbúð á jarðhæð með sérafnotarétti við Hallgerðargötu 9,105 Reykjavík. Íbúðin er skráð 65,7 fm og þar af er geymslan 8,8 fm. Sami eigandi frá upphafi. Íbúðin er mjög stílhrein með fallegum viðarinnréttingum og harðparketi sem tónar vel við skápa og hurðar.
Smelltu hér til að skoða teikningar af eigninni
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæft tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Lýsing eignar: Gengið er inn um sameiginlegan inngang og komið í alrými sem er eldhús og stofa. Eldhúsinnrétting á einum vegg með efri og neðri skápum og harðparket á gólfi, útgengt á sérafnotarétt sem snýr inn í garðinn. Gangur með fataskápum. Hjónaherbergi er með fataskápum og harðparketi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, sturtuklefi, handklæðaofn, innrétting og upphengt salerni.
Í sameign er merkt sérgeymsla, og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Glæsileg og heillandi íbúð á þessum vinsæla stað, sem er í göngufæri við útivistarperluna í Laugardal og falleg gönguleið meðfram strandlengjunni er til miðborgarinnar.
Á hvað eru fjölbýli í 110 Reykjavík að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir alla kaupsamninga í 110 Reykjavík
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Tegund | Fjölbýlishús |
Verð | 68.500.000 kr |
Fasteignamat | 68.500.000 kr |
Brunabótamat | 47.900.000 kr |
Stærð | 65,7 fermetrar |
Herbergi | 2 |
Svefnherbergi | 1 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 2020 |
Lyfta | já |
Bílskúr | nei |
Bílskýli | nei |
Garður | já |
Skráð | 12.03.2025 |