Einbýlishús - 900 Vestmannaeyjar














































Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Nýlegt og fallegt einbýlishús á einni hæð á mjög góðum stað í jaðri miðbæjarins við Hásteinsveg 14 í Vestmannaeyjum. Timburverandir eru við húsið sunnan-og austanmegin og aftan við húsið er garður með grasbletti. Sérstæður rúmgóður bílskúr sem hægt er að breyta í sér íbúð.
Húsið er skráð samtals 119,8 fm að stærð og þar af er bílskúr 30,8 fm að stærð. Húsið er á einni hæð úr timbri og er með þremur svefnherbergjum, þvottahúsi, eldhús, borðstofa-og stofa eru eitt opið alrými.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Nánari lýsing á eign:
Gólfefni hússins eru harðparket og flísar.
Komið er inn í anddyri sem er með fatahengi. Innaf anddyri er þvottahús sem er með hvítri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Stofan,borðstofan og eldhúsið er eitt opið og bjart rými með fallegum stórum gluggum. Úr borðstofu er gengið út á steyptaverönd. Eldhúsið er með hvítri innréttingu sem er með efri-og neðri skápum og flísum á milli og mjög góðu skápaplássi. Borðplötur eru úr eik, innbygggður ísskápur, keramikhelluborð, vifta, ofn í vinnuhæð og borðkrókur. Svefnherbergin eru þrjú og eitt þeirra er með góðum hvítum fataskápum. Fallegt baðherbergi sem er með flísum í hólf og gólf, hvít baðinrétting með innbyggðum vask og speglaskáp, sturtuklefi og, hornbaðkar.
Bílskúrinn er mjög rúmgóður 30,8 fm að stærð, rafdrifin bílskúrshurð og útgengi út í bakgarðinn. Möguleiki er á að breyta honum í sér íbúð. Rúmgóð innkeyrsla sem rúmar allt að þrjá bíla. Bakgarðurinn er með grasblett.
Hér er um að ræða fallegt og vandað 4 herbergja einbýlishús á einni hæð á vinsælum stað í Vestmannaeyjum sem er í göngufæri við grunnskóla, miðbæinn, höfnina og alla helstu verslun, þjónustu og veitingastaði.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Einbýlishús |
| Verð | 64.900.000 kr. |
| Fasteignamat | 58.700.000 kr. |
| Brunabótamat | 57.000.000 kr. |
| Stærð | 119,8 fermetrar |
| Herbergi | 4 |
| Svefnherbergi | 3 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 2018 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | já |
| Bílskýli | nei |
| Garður | já |
| Skráð | 05.02.2026 |