Hraunbær 102E

54.300.000 kr. - 66,3 ferm. - 2 herbergi Fjölbýlishús - 110 Reykjavík

Lýsing eignar

Język polski poniżej

HÚSASKJÓL KYNNIR:

*** SÖLUSÝNING: HRAUNBÆR 102E ÍBÚÐ HRAUNBÆR 102 E - GENGIÐ ER INN Í ÍBÚÐINA Á BAKHLIÐ HÚSSINS, MÁNUDAGINN 04. MAÍ 2026 KL 16:30-17:00. DOMINIKA ANNA MADAJCZAK, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 8488454 EÐA EMAIL: DOMINIKA@HUSASKJOL.IS ***

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Hraunbær 102E Íbúð Hraunbær 102 E - Gengið er inn í íbúðina á bakhlið hússins.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.

Til sölu fallega íbúð á jarðhæð með um 30fm. palli og sérinngangi í fjölbýli í vel við haldnu fjölbýlishúsi við Hraunbæ 102E, 110 Reykjavík.

Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands alls 66,3 fm þar af er íbúð 56,1 fm og geymsla 10,2 fm.

Auka lofthæð er í allri íbúðinni. Eignin er mjög vel staðsett þar sem stutt er í alla þjónustu og frábærar gönguleiðir í Elliðaárdalnum.  

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR

Skipulag og rými

Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu/borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi ásamt sérgeymslu.

Nánari lýsing:

Gengið er inn í íbúðina á bakhlið hússins
Forstofa:  Gengið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp, flísar á gólfi. 
Eldhús: Snyrtilegt með fallegri innréttingu, góðu skápaplássi, helluborð, háfur, innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur með fyrsti og parket á gólfi. 
Stofa: Björt og rúmgóð stofa/borðstofa sem er samliggjandi með eldhúsi. Parket á gólfi. 
Svefnherbergi: Rúmgott og bjart með góðum fataskáp. Parket á gólfi. 
Baðherbergi: Rúmgott með innangengnum sturtuklefa, góðri innréttingu  Tengi er fyrir þvottavél og þurkara. Flísalagt í hólf og gólf.
Pallur: Útgengt úr stofu á rúmgóðan pall sem snýr í suður.  
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign með góðri lofthæð. Einnig er sameigninleg geymsla í sameign sem ekki er einn í fermetratölu eignarinnar. 

Ný gólf í íbúðinni og nýir skápar í svefnherbergi.
Skipt um bárujárn á þaki 2025

Íbúðinni fylgir einkahleðslustöð fyrir rafbíla


Um er að ræða fallega eign á eftirsóttum stað í Árbænum, mikil náttúrufegurð allt um kring og fallegar gönguleiðir í Elliðaárdalnum. Stutt er í skóla og leikskóla ásamt allri helstu þjónustu í næsta nágrenni. Frábær fyrstu kaup. 
 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402 og aðstoðarmaður fasteignasala Dominika Anna Madajczak dominika@husaskjol.is eða i síma 848-8454.

 

Pólska/Polski:

Húsaskjól prezentuje:

Na sprzedaż przytulne mieszkanie na parterze z prywatnym wejściem oraz przestronnym tarasem o powierzchni ok. 30 m² położone w zadbanym budynku wielorodzinnym przy ulicy Hraunbær 102E w Reykjavíku

Nieruchomość ma łączną powierzchnię 66,3 m²,  w tym mieszkanie 56,1 m² oraz komórka lokatorska 10,2 m²

W całym mieszkaniu znajduje się podwyższony sufit co daje przyjemne poczucie przestrzeni. 

Blisko pełnej infrastruktury oraz pięknych terenów spacerowych w Elliðaárdalur

Układ pomieszczeń
Przedpokój, kuchnia z salonem i jadalnią, sypialnia, łazienka oraz prywatna komórka lokatorska.

Opis

Wejście do mieszkania z tyłu budynku. 

  • Przedpokój przestronny z dużą szafą na ubrania, płytki na podłodze
  • Kuchnia estetyczna zabudowa z dużą ilością miejsca do przechowywania, płyta grzewcza, okap, zmywarka i lodówka w zabudowie, parkiet na podłodze
  • Salon i jadalnia jasna i ustawna przestrzeń dzienna połączona z kuchnią, parkiet
  • Sypialnia przestronna dobrze doświetlona z dużą szafą parkiet
  • Łazienka duża z prysznicem typu “walk-in”,  funkcjonalna zabudowa, miejsce na pralkę i suszarkę,  płytki i kamień na ścianach i podłodze
  • Patio - wyjście z salonu na słoneczne patio, skierowany na południe
  • Komórka lokatorska prywatna w części wspólnej budynku plus dodatkowo dostęp do wspólnej przestrzeni magazynowej

Dodatkowe informacje
Nowe podłogi w mieszkaniu nowe szafy w sypialni, wymienione pokrycie dachowe w 2025 roku

Do mieszkania przypisana jest prywatna ładowarka do samochodu elektrycznego znajdująca się przy budynku

Atrakcyjna nieruchomość w dzielnicy Árbær spokojna okolica dużo zieleni oraz świetne tereny spacerowe w Elliðaárdalur blisko szkoły przedszkola i pełna infrastruktura

Idealne mieszkanie na start lub jako pierwsza inwestycja

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

66,3 m2 1 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eiginleikar eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 54.300.000 kr.
Fasteignamat 48.800.000 kr.
Brunabótamat 34.250.000 kr.
Stærð 66,3 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 1974
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 30.04.2026

Upplýsingabæklingur/opið hús

Deila eign



Pin it