64.700.000 kr. - 60,2 ferm. - 3 herbergi Fjölbýlishús - 108 Reykjavík


















































HÚSASKJÓL OG ÁSDÍS RÓSA LÖGFRÆÐINGUR OG LGF KYNNA: Einstaklega bjarta og opna 3ja herbergja íbúð í risi við Hvammsgerði 10, 108 Reykjavík. Eignin er skráð 60,2 fm en er mun stærri að gólffleti.
Gengið er inn um sameiginlegan inngang með neðri hæð, og upp nýlega teppalagðan stiga.
Komið er inn í opið og bjart alrými með parketi á gólfum, mikilli lofthæð og einstökum kvistglugga í stofunni.
Eldhús er opið við stofu og er með nýlegri hvítri innréttingu og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Baðherbergi er endurnýjað, góð sturta og gluggi.
Svefnherbergi 1 er mjög rúmgott og bjart.
Svefnherbergi 2 er einnig mjög rúmgott og þaðan er gengið út á svalir sem snúa út í garðinn.
Íbúðin var endurnýjuð á árunum 2019-2020.
Sér geymsla og sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð hússins og mjög fallegur og gróinn garður er sameiginlegur.
Gerðin eru mjög miðsvæðis í Reykjavík svo það er stutt í stofnbrautir og alla þjónustu þó eignin sé í rólegu íbúðahverfi. Steinsnar í Skeifuna og Fossvogsdalinn.
Eignin er í leigu og eru leigutakar tilbúin til að vera áfram í eigninni ef um semst. Leiga: 310.000 á mánuði.
Ekkert húsfélag er starfandi í húsinu.
*** Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala netfang: asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 895-7784 ***
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Fjölbýlishús |
| Verð | 64.700.000 kr. |
| Fasteignamat | 55.300.000 kr. |
| Brunabótamat | 35.300.000 kr. |
| Stærð | 60,2 fermetrar |
| Herbergi | 3 |
| Svefnherbergi | 2 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 1957 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | nei |
| Garður | nei |
| Skráð | 06.11.2026 |