Kirkjuvellir 7 - 72.700.000 kr - 102,5 ferm. - 3 herbergi

Fjölbýlishús - 221 Hafnarfjörður

Lýsing eignar

*** SÖLUSÝNING: KIRKJUVELLIR 7 ÍBÚÐ 0102, MÁNUDAGINN 24. NÓVEMBER 2025 KL 16:00-16:30. ÁSDÍS ÓSK VALSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 8630402 EÐA EMAIL: ASDIS@HUSASKJOL.IS ***

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Kirkjuvellir 7 Íbúð 0102.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.

Björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð með útgengi á afgirtan suðurpall við Kirkjuvellir 7, 221 Hafnarfirði ásamt merktu stæði í bílastæðahúsi. Íbúðin er skráð 102,5 fm og er geymslan innan íbúðar. Eignin er í eigu dánarbús og þekkir erfingi ástandið því ekki vel. Væntanlegum er því bent á að skoða íbúðina mjög vel.

FASTEIGNAMAT 2026 VERÐUR: 74.050.000 KR.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA

Lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með parketi og 2 föstum skápum. 2 svefnherbergi bæði rúmgóð með parketi og skápum. Eldhús og stofa er opið rými. L-laga eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum ásamt innréttingu á einum vegg á móti, parket á gólfi. Frá stofu er gengið út á afgirtan sérafnotarétt sem snýr í suður, geymsla á pallinum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu, handklæðaofni og upphengdu salerni. Þvottahús er innan ibúðar með flísum á gólfi og vaski. Geymsla er innan íbúðar, parket á gólfi.

Merkt sérbílastæði  (01B01) fylgir íbúðinni. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Frábær staðsetning utarlega á Völlunum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, s.s. verslun, skóla- og leikskóla, sundlaug og íþróttasvæði.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

102,5 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eiginleikar eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 72.700.000 kr
Fasteignamat 68.400.000 kr
Brunabótamat 56.000.000 kr
Stærð 102,5 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 2006
Lyfta
Bílskúr nei
Bílskýli
Garður nei
Skráð 19.11.2025

Upplýsingabæklingur/opið hús

Deila eign



Pin it