Fjölbýlishús - 112 Reykjavík






































*** SÖLUSÝNING: LAUFRIMI 2, MIÐVIKUDAGINN 26. NÓVEMBER 2025 KL 17:00-17:30. ÁSDÍS ÓSK VALSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 8630402 EÐA EMAIL: ASDIS@HUSASKJOL.IS ***
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Laufrimi 2.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.
88,7 fm. 3ja herbergja íbúð við Laufrima 2 í Reykjavík. Íbúðin er á jarðhæð með sérinngangi og útgengi á sérafnotarétt frá stofu. Íbúðin er með 2 svefnherbergjum. Þvottahús og geymsla innan íbúðar. Merkt bílastæði fyrir framan hús. Húsið er klætt að utan og því viðhaldslétt.
Smelltu hér til að skoða teikningar af íbúðinni
Gengið er inn beint í íbúð frá bílastæði og því mjög þægilega aðkoma. Sérinngangur í íbúðina og komið inn í forstofu með flísum á gólfi og fatahengi. 2 svefnherbergi innan íbúðar, bæði með fataskáp og harðparketi á gólfi. Þvottahús/geymsla er innan íbúðar, dúkur á gólfi og vaskur. Baðherbergi er með náttúrustein á gólfi, sturtuklefa og tengi fyrir handklæðaofni. Eldhús og stofa er opið rými. Eldhúsinnrétting er L-laga með efri og neðri skápum ásamt eyju. Neðri skápar eru upprunalegir en efri skápar og eyjan er endurnýjuð fyrir nokkrum árum, innrétting frá Innlifun ehf, borðplatan frá Fantofell og spanhelluborð. Harðparket á gólfum. Frá eldhúsi er gengið út á óafgirtan sérafnotarétt.
Merkt bílastæði á bílaplaninu og hjólageymsla í sameign.
Mjög barnvænt hverfi með leikskóla á móti húsinu og ekki þarf að fara yfir stóra götu á leið í skólann. Stutt er í alla þjónustu í Spönginni og Egilshöll og frábærar göngu- og hjólaleiðir í nágrenninu.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Fjölbýlishús |
| Verð | 69.700.000 kr |
| Fasteignamat | 60.300.000 kr |
| Brunabótamat | 45.200.000 kr |
| Stærð | 88,7 fermetrar |
| Herbergi | 3 |
| Svefnherbergi | 2 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 1994 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | nei |
| Garður | já |
| Skráð | 21.11.2025 |