Fjölbýlishús - 170 Seltjarnarnes
























































*** SÖLUSÝNING: MIÐBRAUT 23 ÍBÚÐ 101, LAUGARDAGINN 17. JANÚAR 2026 KL 14:00-14:30. JÓHANNA KRISTÍN GÚSTAVSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 6989470 EÐA EMAIL: JOHANNA@HUSASKJOL.IS ***
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Miðbraut 23 Íbúð 101.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.
***NÝTT Á SKRÁ***
Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi í sex íbúða húsi. Þrjár hvoru megin á vinsælum stað á Seltjarnarnesinu á Miðbraut 23. Íbúðin er afar björt með útgengi út á 18 fm afgirta timburverönd úr stofu og svefnherbergi sem snýr í vestur sem er með aðgengi að stórum sameiginlegum grónum garði. Sér bílastæði og bílskúrsréttur.
Íbúðin er skráð samtals 75,3 fm að stærð og geymsla í sameign sem er ekki inni í skráðum fm íbúðarinnar. Eignin skiptist í forstofu, eldhús,stofu-og borðstofu sem er eitt opið alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign og þar er einnig sameiginlegt þvottahús.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Nánari lýsing á eign:
Gólfefni íbúðarinnar eru parket og flísar.
Forstofa er flísalögð með gólfhita og innbyggðum fataskáp með rennihurðum. Eldhús, stofa-og borðstofa eru eitt opið og bjart alrými með útgengi út á 18 fm afgirta timburverönd. Eldhúsinnréttingin er endurnýjuð frá HTH úr dökkum við með efri-og neðri skápum og góðu skápaplássi, eyja með graníti sem hægt er að sitja við. Vönduð eldhústæki, ofn í vinnuhæð, keramikhelluborð, vifta og innbyggður ísskápur/frystir. Gólfhiti er í eldhúsi. Baðherbergið er mjög rúmgott, flísar á gólfi og veggjum að hluta, rúmgóður sturtuklefi með gleri, hvít innrétting með skúffum og vask ofan á borðplötu ásamt dökkum skápum frá HTH. Upphengt klósett, handklæðaofn og gluggi sem er opnanlegur. Gólfhiti er á baði. Svefnherbergin eru tvö, rúmgott barnaherbergi og hjónaherbergið er með hvítum fataskápum og út frá hjónaherberginu er útgengt út á veröndina.
Í sameign á fyrstu hæð er sér geymsla og sameiginlegt þvottahús með þremur íbúðum þar sem hver er með sína þvottavél. Garðurinn er skjólsæll og gróinn. Sér bílastæði á lóð og bílskúrsréttur.
Framkvæmdir sem hefur verið farið í að sögn seljanda: 2011 var eignin öll tekin í gegn að innan þá var baðherbergið og eldhúsið endurnýjað og skipt var um raflagnir, neysluvatnslagnir, ofnalagnir og klóak. Einnig er búið að skipta um þak og hluta af gluggum. Húsið var múrviðgert að utan árið 2017 og málað 2024.
Hér er um að ræða fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi og 18 fm timburverönd á barnvænum og rólegum stað á Seltjarnarnesinu þar sem stutt er í leik-og grunnskóla, tónlistarskóla, þróttaaðstöðu fyrir börn og fullorðna, sundlaug, golfvöll. fallegar göngu-og hjólaleiðir meðfram sjónum og fjöruna. Einnig er ýmis verslun og þjónusta í næsta nágrenni eins og matvöruverslun, kaffihús og ísbúð á Eiðistorgi og veitingastaðurinn Ráðagerði við Gróttu svo eitthvað sé nefnt.
Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Fjölbýlishús |
| Verð | 76.700.000 kr |
| Fasteignamat | 69.750.000 kr |
| Brunabótamat | 41.550.000 kr |
| Stærð | 75,3 fermetrar |
| Herbergi | 3 |
| Svefnherbergi | 2 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 1958 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | nei |
| Garður | já |
| Skráð | 16.01.2026 |