Nýbýlavegur 50 - 74.900.000 kr - 105,8 ferm. - 3 herbergi

Fjölbýlishús - 200 Kópavogur

Lýsing eignar

Húsaskjól og Ásdís Rósa lögfræðingur og löggiltur fasteignasali kynna fallega 84,7 fm 3ja herbergja íbúð með bílskúr í vel viðhöldnu húsi við Nýbýlaveg 50. 2 svefnherbergi, stórir gluggar og þvottaaðstaða innan íbúðar. Bílskúr 21,1 fm samtals 105,8 fm. Gæludýr leyfð.

Komið er inn um sameiginlegan inngang með annarri íbúð á hæðinni. Þaðan er gengið inn í íbúðina. Komið er inn í hol með fataskáp og Drápuhlíðargrjóti á vegg.

Hjónaherbergi er með parketi og skápum.

Eldhús er með mjög rúmgóðri innréttingu í U með miklu vinnuplássi og góðum borðkrók. Nýleg tæki.

Baðherbergi er rúmgott og þar er tengi fyrir þvottavél. Gluggi er á baðherberginu og gott skápapláss.

Stofa er björt með stórum gluggum og parketi á gólfi. Frá stofu er gengið út á svalir.

Barnaherbergi er með parketi og skáp.

Bílskúr er með langri innkeyrslu sem rúmar vel 3 bíla. Nýr þakpappi á skúr. Rafdrifin hurð, kalt vatn og gluggar.

Stór og gróin lóð er við húsið. Gæludýr leyfileg.

Virkilega björt og falleg eign á góðum stað þar sem stutt er í leikskóla og skóla og útivistarparadísina í Fossvogsdalnum.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala netfang:  asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 895-7784

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

105,8 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: já

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 74.900.000 kr
Fasteignamat 64.550.000 kr
Brunabótamat 51.270.000 kr
Stærð 105,8 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1970
Lyfta nei
Bílskúr
Bílskýli nei
Garður
Skráð 05.08.2025

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it