164.700.000 kr. - 194,2 ferm. - 6 herbergi Parhús - 112 Reykjavík










OPIÐ HÚS VERÐUR Í VÆTTABORGUM 52, ÞRIÐJUDAGINN 13. OKTÓBER KL. 17:00-17:30.
Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR VÆTTABORGIR 52.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt verðmat á þinni eign.
Húsaskjól og Pétur Ísfeld, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu glæsilegt og mikið endurnýjað parhús á eftirsóttum stað við Vættaborgir 52 í Grafarvogi. Eignin býður upp á einstaklega vel skipulagt fjölskylduheimili með glæsilegu alrými, fallegum garði og stórbrotnu útsýni yfir Esjuna.
Um er að ræða rúmgóða eign á tveimur hæðum, samtals 194,2 fm, þar af 157,7 fm íbúðarrými og 36,5 fm bílskúr. Auk skráðra fermetra fylgja eigninni tvö óskráð rými sem auka nýtingarmöguleika hennar verulega. Inn af sjónvarpsherbergi á neðri hæð er þvottahús og inn af bílskúr er rúmgóð geymsla, en hvorugt rýmið er innifalið í skráðum fermetrafjölda.
Skipulag
Skipulag eignarinnar er einstaklega fjölskylduvænt og vel útfært. Á jarðhæð eru forstofa, svefnherbergi, baðherbergi, fjölskyldustofa, þvottahús, bílskúr og geymsla.
Efri hæðin er hjarta heimilisins þar sem glæsilegt alrými sameinar eldhús, borðstofu og stofu í bjarta og opna heild. Mikil lofthæð, stórir gluggar og óhindrað útsýni yfir Esjuna gefa rýminu einstakt yfirbragð. Frá stofu er útgengt á sólríkan suðurpall með heitum potti og skjólgóðum garði. Á hæðinni eru einnig þrjú rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi.
Samtals býður eignin upp á fjögur svefnherbergi, tvær stofur og einstaklega gott skipulag sem hentar jafnt fjölskyldum sem vilja rúmgott og vandað heimili.
Nánari lýsing
Efri hæð
Alrými Glæsilegt alrými með mikilli lofthæð þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda opna og samfellda heild. Stórir gluggar á báðum göflum fylla rýmið af birtu og njóta útsýnis yfir Esjuna. Ljóst parket er á gólfi.
Eldhús Fallega endurnýjað eldhús með svörtum innréttingum, steingráum steinborðplötum og stórri eyju með helluborði. Mikið vinnu- og skápapláss, innbyggður ísskápur og uppþvottavél ásamt tveimur ofnum. Hljóðdempandi veggklæðning úr olíuborinni eik gefur rýminu hlýlegt yfirbragð og góða hljóðvist.
Borðstofa Borðstofan er staðsett við glugga með stórkostlegu útsýni yfir Esjuna og rúmar auðveldlega stórt matarborð.
Stofa Björt og rúmgóð stofa með stórum gluggum til suðurs og útgengi á timburpall og skjólgóðan garð. Gott pláss er fyrir rúmgóða setuaðstöðu.
Svefnherbergi Á hæðinni eru þrjú rúmgóð svefnherbergi með mikilli lofthæð, stórum gluggum, fataskápum og ljósu parketi á gólfum.
Baðherbergi Smekklegt baðherbergi með vandaðri viðarinnréttingu, góðu skápaplássi, stórum spegli með lýsingu og baðkari. Marmaraáferðar flísar á gólfi og falleg veggklæðning skapa nútímalegt yfirbragð.
Jarðhæð
Forstofa Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi, góðu skápaplássi og beinu aðgengi að bílskúr.
Bílskúr Rúmgóður bílskúr með rafdrifinni innkeyrsluhurð. Inn af bílskúr er gott óskráð geymslurými.
Svefnherbergi Bjart og rúmgott herbergi með fataskáp og ljósu parketi.
Baðherbergi Fallegt baðherbergi með hvítri innréttingu, sturtu, upphengdu salerni og opnanlegum glugga.
Sjónvarpsrými Notalegt sjónvarpsrými með útgengi út í garð.
Þvottahús Vandað þvottahús í óskráðu rými með góðri innréttingu, stóru vinnuborði og plássi fyrir þvottavél, þurrkara og ísskáp.
Lóð Vel hirt og skjólgóð lóð. Fyrir framan húsið er hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Á baklóð er fallegur garður sem snýr í suður, með rúmgóðum timburpalli með markísu og heitum potti sem skapar frábæra aðstöðu til útiveru.
Staðsetning Eignin er staðsett á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í Grafarvogi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, verslanir, þjónustu, almenningssamgöngur og fjölbreytt útivistarsvæði.
Endurbætur
2013: Þvottahús flutt í óskráð rými og allt endurnýjað. Gert var ráð fyrir glugga á teikningum en hann var ekki settur upp. Fyrra þvottahúsi var breytt í sjónvarps-/fjölskyldurými.
2015: Skipt um alla opnanlega glugga. Nýir þéttilistar og einangrun sett í glugga.
2016: Baðherbergi á jarðhæð endurnýjað, forstofa flísalögð og skáphurðir í öllum herbergjum sprautulakkaðar hvítar.
2024: Efri hæð opnuð og endurskipulögð. Nýtt eldhús frá Eirvík sett upp og allt húsið parketlagt.
2024: Ný Siemens spanhelluborð og tveir Siemens ofnar, þar af annar með innbyggðum örbylgjuofni.
2024: Innbyggður Liebherr ísskápur frá Eirvík.
2026:
- Nýjar gólfflísar lagðar á baðherbergi á efri hæð og gluggar málaðir að utan.
- Skipt um allar innihurðir.
- Stigi parketlagður og handrið málað.
- Þakrennur yfirfarnar.
Ath. í myndum með eign er búið að taka til í bílskúr með gerfigreind og í teikningum er veggur enn sýnilegur milli eldhús og stofu en þann vegg er búið að taka og er eldhús og stofa eitt rými.
Hér er hægt að nálgast teikningar af eign
Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Parhús |
| Verð | 164.700.000 kr. |
| Fasteignamat | 137.400.000 kr. |
| Brunabótamat | 104.750.000 kr. |
| Stærð | 194,2 fermetrar |
| Herbergi | 6 |
| Svefnherbergi | 4 |
| Baðherbergi | 2 |
| Byggingarár | 1998 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | já |
| Bílskýli | nei |
| Garður | nei |
| Skráð | 07.10.2026 |