74.700.000 kr. - 94,8 ferm. - 4 herbergi Sumarhús - 805 Selfoss (dreifbýli)




















































Húsaskjól kynnir
Afar fallegt sumar/ heilsárs hús að Veitubraut 3 í landi Vaðness í Grímsnesi.
*** Sölusýning 1.5.2026 kl 11:00 - 12:00, vinsamlegast bókið skoðun og sækið upplýsingabækling hér ***
Fasteignin er 94,8 fm, skv. skráningu HMS, 4ra herbergja heilsárs-sumarhús, byggt úr timbri á steyptum grunni 2008. Húsið stendur á 6.628 fm eignarlóð.
Forstofa er með fataskáp, flísum á gólfi. Alrými, þ.e. eldhúskrókur er með fallegri L laga innréttingu og eyju, granít borðplötu á eyju, Eldshús borðstofa og setustofu mynda eina heild með útgengi á pall. Svefnherbergin eru 3 talsins, rúmgóð tvö af þremur með fataskápum. Baðherbergið er flísalagt með sturtuklefa, upphengdu wc og vaski í lítilli innréttingu, útgengi að potti á palli. Gólfefni eru Linoleum parket. Myndarlegur trépallur 75,8 fm umlykur húsið á 3 vegu, þar er að finna heitan pott, hitaveitu skel með hitastýringu. Lóðin umhverfis er óhreyfð, með landslagi og nátturulegum gróðri svæðisins.
Smellið hér til að sækja gögn um eignina
Tengill á teikningavef https://uppsveitir.midja.is/Teikningar/-4357.pdf
Húsgögn, ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Nánari upplýsingar veitir Guðbrandur Kristinn Jónasson lgfs, gudbrandur@husaskjol.is, gsm 8963328
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Sumarhús |
| Verð | 74.700.000 kr. |
| Fasteignamat | 60.550.000 kr. |
| Brunabótamat | 59.750.000 kr. |
| Stærð | 94,8 fermetrar |
| Herbergi | 4 |
| Svefnherbergi | 3 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 2008 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | nei |
| Garður | nei |
| Skráð | 21.04.2026 |