Vesturberg 97

99.700.000 kr. - 227,8 ferm. - 5 herbergi Einbýlishús - 111 Reykjavík

Lýsing eignar

Húsaskjól og Steingrímur Þór Ágústsson löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu Vesturberg 97: 227,8 fm einbýlishús á góðum stað í Breiðholtinu.
Um er að ræða fimm herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með tveimur svefnherbergjum, vinnustofu, sjónvarpsherbergi og stofu. Stofan er björt og skemmtileg með stórum gluggum sem hleypa góðri náttúrulegri birtu inn. Í húsinu eru tvö baðherbergi, sér þvottahús inn af eldhúsi, tvær geymslur í kjallara og ófrágengið rými undir öllu húsinu. Flest herbergin á efri hæð eru með léttum veggjum, sem býður upp á möguleika á breytingum á skipulagi.

Nánari lýsing:
Anddyri: Gengið er inn í flísalagt anddyri með fatahengi og rúmgóðum fataskáp.
Stofa: Frá anddyri er gengið inn í parketlagðan skála og þaðan liggja tröppur upp í stofu. Stofan er parketlögð, með góða lofthæð og stóra glugga sem skapa bjart og hlýlegt rými.
Eldhús: Eldhúsið er með dúk á gólfi og flísum á vegg við innréttingu. Inn af eldhúsi er búrskápur með þvottaaðstöðu og tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi (2 - 4):
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með ljósgrænum veggjum og dúk á gólfi.
Herbergi 2: Tvö herbergi hafa verið sameinuð í eitt rúmgott rými með tvennum gluggum og tveimur ofnum. Teppi er á gólfi.
Herbergi 3 / vinnustofa: Upprunalega voru hér tvö herbergi, vinnustofa og húsbóndaherbergi, sem hafa verið sameinuð í eitt. Rýmið er með tveimur gluggum, tveimur ofnum og teppi á gólfi.
Herbergi 4 / sjónvarpsherbergi: Á neðri hæð er parketlagt herbergi með stórum glugga sem einnig má nýta sem svefnherbergi.
Baðherbergi (2): Í húsinu eru tvö baðherbergi, bæði flísalögð í hólf og gólf. Baðherbergi 1 er með sturtu og baðherbergi 2 er með baðkari.
Garður og útivist: Skjólgóður garður er í kringum húsið og stutt er í gönguleiðir að Elliðaárdal.
Bílskúr: Bílskúr fylgir eigninni og er staðsettur rétt fyrir ofan húsið í bílastæðalengju.
Bílastæði: Staðsett fyrir framan bílskúr og á plani hjá bílastæðalengju

ATH: Húsnæðið þarfnast töluverðra endurbóta og standsetningar. Áhugasamir aðilar eru hvattir til að skoða eignina vel.

Hér er hægt að nálgast teikningar af eign

Upplýsingar veitir: Steingrímur Þór Ágústsson, löggiltur fasteignasali í síma 869-2831 eða steingrimur@husaskjol.is

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

227,8 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: já

Eiginleikar eignar

Tegund Einbýlishús
Verð 99.700.000 kr.
Fasteignamat 118.200.000 kr.
Brunabótamat 110.350.000 kr.
Stærð 227,8 fermetrar
Herbergi 5
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1975
Lyfta nei
Bílskúr
Bílskýli nei
Garður nei
Skráð 12.06.2026

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it