Vesturbrún 23

199.400.000 kr. - 260,9 ferm. - 7 herbergi Parhús - 104 Reykjavík

Lýsing eignar

Húsaskjól fasteignasala og Anna Laufey Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu glæsilegt og fallegt parhús innst í botnlanga í friðsælu hverfi í Laugarásnum teiknað af Kjartani Sveinssyni.

Vesturbrún 23 er samkvæmt HMS 260,9 fm þar af bílskúr 32 fm.

Um er að ræða hús á tveimur hæðum sem skiptist þannig: á neðri hæðinni eru þrjár samliggjandi stofur, eldhús með borðkrók, geymsla og vaskahús með útgengi út á verönd. Forstofa, gesta salerni, herbergi og hol með aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum og fallegum stiga upp á efri hæð hússins. Á efri hæðinni eru tvö barnaherbergi, baðherbergi með baðkari og sturtu og stórt hjónaherbergi. Bílskúrinn er samtengdur húsi með hurð og innkeyrsluhurð.

Nánari lýsing:

Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskápum og innréttingu. Á aðra höndina er gestasalerni með baðinnréttingu og þar við hlið er rúmgott barnaherbergi með góðum fataskápum. Frá forstofu er komið inn í bjart og fallegt hol með glæsilegum steyptum stiga upp á aðra hæð með aukinni lofthæð og gólfsíðum gluggum. Frá forstofu er gengið inn í þrjár samliggjandi stofur og eldhús. Eldhúsið er afar bjart með góðri eldhúsinnréttingu og vinnuaðstöðu, rúmgóðum og björtum borðkrók. Inn af eldhúsi er geymsla/búr og vaskahús með útgengi á verönd. Frá eldhúsi er opið inn í fremstu stofuna sem í dag er nýtt sem sjónvarpsrými. Stofan í miðjunni er tekin niður um tvö þrep og nýtt í dag sem borðstofa með útgengi út á verönd. Þaðan eru tvö þrep upp í arin stofu með gólfsíðum gluggum, þar er arinn sem nýtist einnig úti á palli. Stiginn upp á efri hæðina er rúmgóður og með sérsmíðuðu handriði. Bjartur stigapallur með gólfsíðum gluggum að hluta. Til hægri eru tvö barnaherbergi, bæði herbergin eru björt með góðum fataskápum. Rúmgott baðherbergi með niðursteyptu baðkari góðri baðinnréttingu og sturtu. Hjónaherbergið er afar rúmgott og bjart með góðum fataskápum og snyrtiaðstöðu. 

Eignin er öll hin vandaðasta, öll herbergi og stofur eru parkertlagðar en borðstofa,votrými og anddyri eru með sömu gólfflísum. Teppi er á stiga og svefnherbergisgangi. Loftin eru viðarklædd með innbyggðir lýsingu.

Viðhald sl. ára:  

Þakkantar voru endurnýjaðir og yfirfarnir fyrir tveim árum og einnig nýjar rennur og niðurföll nema í stofu. Þakið var einnig yfirfarið, skipt út nöglum og settar skrúfur og í framhaldi grunnað og tvímálað. Ný hurð á bílskúr og skipt um klæðningu á aðalhurð. Gluggar í húsinu nýlega málaðir.

Teikningar hér:

https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives/5004-S%C3%A9ruppdr%C3%A6ttir/?q=Vesturbr%C3%BAn%2023

Nánari upplýsingar veitir Anna Laufey Sigurðardóttir í síma 696-5055 eða netfang anna@husaskjkol.is

 

 

 

 

 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

260,9 m2 4 svefnherbergi 2 baðherbergi Bílskúr: já

Eiginleikar eignar

Tegund Parhús
Verð 199.400.000 kr.
Fasteignamat 169.400.000 kr.
Brunabótamat 133.150.000 kr.
Stærð 260,9 fermetrar
Herbergi 7
Svefnherbergi 4
Baðherbergi 2
Byggingarár 1987
Lyfta nei
Bílskúr
Bílskýli nei
Garður
Skráð 15.04.2026

Deila eign



Pin it