87.300.000 kr. - 118,9 ferm. - 4 herbergi Fjölbýlishús - 203 Kópavogur


























































HÚSASKJÓL OG ÁSDÍS RÓSA LÖGFRÆÐINGUR OG LÖGGILTUR FASTEIGNASALI KYNNA: 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð í lyftuhúsi með stæði í bílskýli við Vindakór 6, 203 Kópavogur. Herbergin eru virkilega rúmgóð. Þvottahús innan íbúðar. Íbúðin er skráð 118.9 fm og þar af er geymslan 6,9 fm.
Lýsing eignar:
Gengið er inn um sérinngang af svölum og komið inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. 3 svefnherbergi eru í íbúðinni, öll rúmgóð með harðparketi á gólfi og 2 með föstum fataskápum. Eldhús og stofa er opið rými, eldhúsinnrétting á einum vegg með efri og neðri skápum og eyja með góðu vinnuplássi. Frá stofu er gengið út á vestursvalir. Baðherbergi er með flísum á gólfi, bæði sturtuklefi og baðkar ásamt handklæðaofni og innréttingu. Þvottahús er innan íbúðar, flísar á gólfi, vaskur og snúrur.
Í sameign er sérstæði í bílahúsi, sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Búið er að draga rafmagn í bílahúsið þannig að það sé auðvelt að setja upp hleðslustöð.
Smelltu hér til að skoða teikningar
Samantekt:
Rúmgóð íbúð með 3 góðum svefnherbergjum. Barnvænt hverfi og stutt í skóla, íþróttir og gönguleiðir.
*** Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala netfang: asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 895-7784 ***
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Fjölbýlishús |
| Verð | 87.300.000 kr. |
| Fasteignamat | 84.750.000 kr. |
| Brunabótamat | 71.020.000 kr. |
| Stærð | 118,9 fermetrar |
| Herbergi | 4 |
| Svefnherbergi | 3 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 2007 |
| Lyfta | já |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | já |
| Garður | já |
| Skráð | 31.08.2026 |