Parhús - 105 Reykjavík
Virkilega sjarmerandi parhús á 2 hæðum við Samtún 2, 105 Reykjavík með aukaíbúð í kjallara. Húsið er skráð 137,2 fm og hvor hæð 68.6 fm. Húsið er á steyptum grunni og efri hæðin er forskalað timburhús. Stór afgirtur suðurgarður fylgir eigninni og því einstakt tækifæri að eignast lítið og krúttlegt sérbýli með aukaíbúð og stórum garði í hjarta Reykjavíkur.
FASTEIGNAMAT 2026 VERÐUR: 83.150.000 KR.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA
Smelltu hér til að sjá teikningar af eigninni.
Skipulag eignar:
Efri hæð: Forstofa, eldhús, stofa, 2 svefnherbergi
Neðri hæð: 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og stúdióíbúð með sérinngangi.
Lýsing eignar:
Gengið er inn á efri hæð, komið inn í forstofu með kókósteppi og fatahengi. Gengið er inn í opið rými sem er eldhús, borðstofa og stofa. Frá stofunni er gengið niður í stóran afgirtan bakgarð. Eldhús er rúmgott með U-laga innréttingu og stórum borðkrók. Stórir gluggar í eldhúsi og magnað útsýni m.a. yfir Höfða, Akrafjall, Skarðsheiði og Esjuna. Stofan er mjög rúmgóð.. 2 svefnherbergi, bæði með lausum skápum. Gólffjalir eru á allri hæðinni fyrir utan forstofu. Geymsluloft er yfir efri hæðinni.
Neðri hæð: Gengið niður stiga með kókosteppi. 2 svefnherbergi, bæði með flotuðu gólfi, annað með litlum innbyggðum skáp. Baðherbergi er með flísum á gólfi, baðkari, glugga og skápum. Gott skápapláss á gangi. Þvottahús með flotuðu gólfi og glugga.
Stúdíóíbúð: Sérinngangur og komið inn í forstofu. Baðherbergi með sturtuklefa og síðan er salerni með máluðu gólfi. Innangengt í þvottahúsið frá baðherbergi. Rými sem er með lítilli eldhúsinnréttingu og nýtt sem alrými (svefnrými, eldhús og stofa), flotað gólf.
Sérgarður sem er stór og gróinn. Undir stiga er köld útigeymsla.
Byggingarréttur fyrir bílskúr samkvæmt deiluskipulagi, búið er að fá samþykktar teikningar fyrir bílskúr. Við hlið hússins er sérbílastæði og gott aðgengi að því að hlaða bílinn í gegnum þvottahúsið.
Samantekt:
Góð staðsetning og stutt í helstu þjónustu
Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Tegund | Parhús |
Verð | Tilboð |
Fasteignamat | 70.700.000 kr |
Brunabótamat | 56.050.000 kr |
Stærð | 137,2 fermetrar |
Herbergi | 6 |
Svefnherbergi | 4 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1946 |
Lyfta | nei |
Bílskúr | nei |
Bílskýli | nei |
Garður | já |
Skráð | 04.09.2025 |