147.400.000 kr. - 148,9 ferm. - 4 herbergi Raðhús - 203 Kópavogur
Húsaskjól kynnir:
Akurhvarf 6, vandað 148,9 fm endaraðhús í 3ja húsa lengju, ásamt veglegum 12 fm sólskála ( frá Gluggar og garðhús ). Sólskálinn er ekki inni í skráðri stærð eignarinnar, sem reiknast því 160,9 fm. Bílskúrinn er innbyggður 24,7 fm. Húsið er byggt úr forsteyptum einingum frá Smellinn. Stétt umhverfis húsið og bílastæði er steypt úr mynstursteypu. Í bílastæðinu er snjóbræðslukerfi, með varmaskipti.
Nánari lýsing:
Forstofa með millihurð, 4x fataskápar, Granít flísar á gólfi.
Gengið er inn í bílskúr í gegnum þvottahús, þar sem öllu er haganlega fyrirkomið. Bílskúrinn er með millilofti að hluta, skrifstofu aðstöðu innst, flísar á gólfi.
Eldhúsið er opið með stórri innréttingu, granít borðplötum, eldunareyju, uppþvottavél og ofni í vinnuhæð og stórum ísskáp. Uppþvottavél og ísskápur fylgja, gólfefnið er Granít flísar.
Hjónaherbergið er með stórum fataskáp, með rennihurðum og parket á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt, gólf og veggir. Baðkar, sturtuklefi, upphengt wc, línskápur og handklæðaofn.
Borðstofa og stofa er með parket á gólfi, aukinni lofthæð opnun út í garðskála, þaðan er gengið út á mynstursteypta verönd.
Tvö barnaherbergi eru með parket á gólfum, 2x skápur í öðru herberginu.
Í húsinu er gólfhiti, milliveggir úr gifsi og sérútbúnaður til að jarðtengja allar lagnir.
Upplýsingar veitir Guðbrandur Kristinn Jónasson, lgfs gsm 896 3328 gudbrandur@husaskjol.is.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Raðhús |
| Verð | 147.400.000 kr. |
| Fasteignamat | 128.250.000 kr. |
| Brunabótamat | 82.100.000 kr. |
| Stærð | 148,9 fermetrar |
| Herbergi | 4 |
| Svefnherbergi | 3 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 2004 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | já |
| Bílskýli | nei |
| Garður | nei |
| Skráð | 29.05.2026 |