Breiðavík 16 - 71.700.000 kr - 90,0 ferm. - 3 herbergi

Fjölbýlishús - 112 Reykjavík

Lýsing eignar

Falleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og sérafnotarétti við Breiðuvík 16, 112 Reykjavík. Næg bílastæði fyrir framan húsið, 32 stæði fyrir 16 íbúðir. Íbúðin er skráð 90 fm. og þarf af er geymslan 7.9 fm. Lítið mál að hafa gæludýri í þessari íbúð.

Núverandi eigendur hafa endurnýjað íbúðina töluvert s.l. ár: Ný eldhúsinnrétting, nýtt harðparket og flísar í anddyri. Allir hurðar sem og skápar í forstofu voru lakkaðir, blöndunartæki, sturtugler og baðinnrétting var endurnýjuð. 

FASTEIGNAMAT 2026 VERÐUR: 65.250.000 KR.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR

Lýsing eignar: Gengið er inn um sérinngang og komið inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Eldhús og stofa er opið rými, U-laga eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, gluggi í eldhúsi. Stofan er með harðparketi og útgengt á hellulagðan sérafnotarétt sem snýr í suður. Hjónaherbergi er með harðparketi og skápum og barnaherbergi er með harðparketi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari og innréttingu. Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi og vask. 

Sameign: Í sameign er sérgeymsla  sem og hjóla- og vagnageymsla, einnig er dekkjahótel sem allir íbúar geta nýtt sér.

Breiðavík 16 er virkilega vel staðsett í rólegu íbúðarhverfi með fallegar gönguleiðir í kring. Leik-grunn og framhaldsskóli er í hverfinu. Íþróttafélagið Fjölnir er í hverfinu og stutt í Egilshöll fyrir líkamsrækt og ýmsa afþreyingu. Stutt að fara í Spöngina með 2 matvöruverslunum, bakarý og skyndabitastöðum.

Samantekt:
Þetta er frábær íbúð sem hefur verið töluvert endurnýjuð. Sérinngangur, jarðhæð og sérafnotaréttur þannig að hún hentar vel yfir flesta. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

90,0 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eiginleikar eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 71.700.000 kr
Fasteignamat 60.350.000 kr
Brunabótamat 41.300.000 kr
Stærð 90,0 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1998
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 14.10.2025

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it