Dverghamrar 3

167.700.000 kr. - 211,9 ferm. - 4 herbergi Einbýlishús - 112 Reykjavík

Lýsing eignar

Húsaskjól kynnir:

Afar gott, vel við haldið 211,9 fm einbýlishús að Dverghömrum 3.  Samkvæmt HMS skiptist eignin svo, einbýli 158 fm, bílskúr 41,3 fm og geymsluskúr 12,6 fm.  Öll umgjörð hússins er til fyrirmyndar, garður, skjólveggir og pallur.  Heitur pottur og útisturta.  Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er við bílskúr. 

Nánari lýsing:

Forstofa með flísum á gólfi og innréttingu.

Alrými, parket á gólfum, stofa með útgengi á pall og borðstofa.

Eldhús, flísar á gólfi, borðkrókur og vönduð innrétting, með helluborði, ofn í vinnuhæð og uppþvottavél.

Þvottahús, flísar á gólfi, stór innrétting, handklæðaofn og útgengi í garð.

Baðherbergi, flísar í hólf og gólf, innréttingu, upphengdu wc og handklæðaofn.

Hjónaherbergi, parket á gólfi,  góðir fataskápar.

Herbergi 1, notað sem vinnuherbergi, parket á gólfi, gluggar á tvo vegu, 2x fataskápur.

Herbergi 2, stórt, notað sem bókaherbergi, hægt að skipta upp í tvö herbergi.  Parket á gólfi 4x fataskápur.

Bílskúrinn, tvær innkeyrsluhurðir í eitt rými, milliloft yfir að hluta, rafmagnsopnari á hurðum, með heitu og köldu vatni. Inngöngudyr við anddyri. Aukabílastæði er í suðurenda lóðar, mögulega fyrir kerru eða hjólhýsi, eða bíl.

Nánari upplýsingar um viðhald og endurbætur er að finna í ástands yfirlýsingu seljenda.

Upplýsingar veitir Guðbrandur Kristinn Jónasson, lgfs. gudbrandur@husaskjol.is  gsm 896 3328

 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

211,9 m2 3 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: já

Eiginleikar eignar

Tegund Einbýlishús
Verð 167.700.000 kr.
Fasteignamat 151.700.000 kr.
Brunabótamat 126.860.000 kr.
Stærð 211,9 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 1991
Lyfta nei
Bílskúr
Bílskýli nei
Garður nei
Skráð 14.08.2026

Deila eign



Pin it