56.700.000 kr. - 78,1 ferm. - 3 herbergi Fjölbýlishús - 200 Kópavogur




































3ja herbergja íbúð á 7. hæð við Engihjalla 19, 200 Kópavogur. Frábær fyrstu kaup á þessum vinsæla stað í Kópavogi. Merkt bílastæði á bílaplani. Íbúðin er skráð 78,1 fm og að auki er óskráð sérgeymsla í sameign. Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús fyrir íbúðir á hæðinni.
Lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með harðparketi. Eldhús frá Axis, innrétting á 2 veggjum með efri og neðri skápum, tengi fyrir uppþvottavél, borðkrókur við glugga, harðparket á gólfi. Stofan er við hlið eldhúss, harðparket á gólfi og útgengt á stórar svalir með útsýni. 2 svefnherbergi, bæði með harðparketi og skápum. Frá hjónaherbergi er útgengt á sömu svalir og frá stofu. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, upphengt salerni og innrétting.
Í sameign er óskráð sérgeymsla og hjóla- og vagnageymsla. Á sömu hæð og íbúð er sameiginlegt þvottahús.
Eignin er í eigu dánarbús og er væntanlegum kaupendum því bent á að skoða íbúðina mjög vel. Enginn af erfingjum dánarbúsins hefur búið í eigninni.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Fjölbýlishús |
| Verð | 56.700.000 kr. |
| Fasteignamat | 54.400.000 kr. |
| Brunabótamat | 43.650.000 kr. |
| Stærð | 78,1 fermetrar |
| Herbergi | 3 |
| Svefnherbergi | 2 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 1979 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | nei |
| Garður | já |
| Skráð | 05.11.2026 |