61.700.000 kr. - 68,6 ferm. - 2 herbergi Fjölbýlishús - 113 Reykjavík






































Um er að ræða 68,6 fm í búð, þar af geymsla 5,5 fm og skiptist eignin í forstofu, svefnherbergi, eldhús, borðstofu og stofu í opnu rými, baðherbergi og geymslu með glugga á 1.hæð gengt inngangi íbúðar.
Það sem heillaði seljendur mest við eignina er að hún er vel uppsett, alrýmið er stórt og opið. Geymslan sem er gengt inngangi íbúðar er með glugga og hefur verið hægt að nota hana sem vinnurými. Sameiginleg bílastæði með snjóbræðslu fyrir húsinu og þar af eru 2 með hleðslustöð. Það er dásamlegt að hafa Úlfarsfellið og allar fallegu gönguleiðirnar í nágrenninu en fátt er betra en að skella sér upp Úlfarsfellið á góðviðrisdegi og svo í heita pottinn í Dalslauginni sem er hinumegin við götuna.
Smelltu hér til að skoða teikningar af eigninni
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í anddyri með fataskáp frá HTH.
Eldhús / stofa: Er í opnu sameiginlegu rými, í eldhúsi er vönduð hvít innréttingin frá HTH, AEG tæki. Úr stofu er útgengi út á vestursvalir.
Herbergi: Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum fataskápum frá HTH.
Baðherbergi: Baðherbergi er flísalagt, rúmgóð "walk-in" sturta, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Fallegt harðparket er á öllum rýmum íbúðar utan baðherbergis.
Sérgeymsla: Geymsla er með glugga og er staðsett á 1. hæð gengt inngangi íbúðar.
Sameign Mynddyrasími er í anddyri sameignar.
í Kjallara hússins er Hjóla- og vagnageymsla.
Góð staðsetning í suðurhlíð Úlfarsárdals. Einstakar náttúruperlur eru í göngufæri, Úlfarsárdalur, Úlfarsfell, Reynisvatn og fl. Fjölmargir göngu- og hjólastígar bjóða uppá fjölbreytta möguleika til útivistar og tengja saman hverfin í nágrenninu. Félagssvæði Fram, bókasafn og sundlaug er einnig staðsett neðst í dalnum. Dalskóli er staðsettur neðst í dalnum og er samrekin leik- og grunnskóli.
Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Fjölbýlishús |
| Verð | 61.700.000 kr. |
| Fasteignamat | 59.500.000 kr. |
| Brunabótamat | 47.150.000 kr. |
| Stærð | 68,6 fermetrar |
| Herbergi | 2 |
| Svefnherbergi | 1 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 2020 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | nei |
| Garður | já |
| Skráð | 01.07.2026 |