Hafnarbraut 6 - Tilboð - 143,6 ferm. - 3 svefnherbergi

Fjölbýlishús - 200 Kópavogur

Lýsing eignar

Glæsileg og vönduð 5 herbergja, 143,6 fm íbúð á jarðhæð við Hafnarbraut 6, 200 Kópavogi. Tveir sólríkir sérafnotareitir fylgja íbúðinni, bæði fyrir framan hús til vesturs og fyrir aftan hús til austurs. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Fjögur rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, baðherbergi, gestasalerni og sér þvottaherbergi. Einstaklega skemmtilega fjölskylduíbúð.  

Lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með harðparketi og föstum fataskápum. Sérþvottahús innan íbúðar með flísum á gólfi, vaski og innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og snúrur. Gestasalerni með flísum á gólfi og upphengdu salerni. 4 svefnherbergi, öll mjög rúmgóð með harðparketi og skápum. Frá einu barnaherbergi er gengið út á hellulagðan afnotarétt. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, upphengt salerni, innréttingar og gluggi.Eldhús og stofa er rúmgott alrými. Rúmgóð eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum ásamt eyju, harðparket á gólfi. Frá stofu er gengið út á stórar svalir með sjávarútsýni
Einstaklega gott loftræstikerfi og vel hljóðeinangruð íbúð.

Merkt sérbílastæði fylgir íbúðinni. Einnig er  sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Hafnarbraut 6 er vel staðsett hús, rólegt hverfi en samt stutt í allar áttir. Algjör útivistarparadís með fallegum hjóla- og gönguleiðum meðfram sjó í allar áttir. Fjölskylduvænt svæði með margskonar þjónustu á svæðinu, s.s. Sundlaug með líkamsrækt (Katla fitness), bakarí, 2 veitingastaðir, Krambúð, snyrtistofa, Go Move líkamsrækt, Sky Lagoon, Bókasafn, kirkja, skólar, leikskólar, Salurinn tónleikahús.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

143,6 m2 3 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eiginleikar eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð Tilboð
Fasteignamat 100.200.000 kr
Brunabótamat 94.580.000 kr
Stærð 143,6 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 2024
Lyfta
Bílskúr nei
Bílskýli
Garður nei
Skráð 17.12.2025

Deila eign



Pin it