Hörgsholt 33

118.700.000 kr. - 152,4 ferm. - 4 herbergi Einbýlishús - 220 Hafnarfjörður

Lýsing eignar

Einstök eign við Hörgsholt 33, 220 Hafnarfirði. Einbýlishús á einni hæð með stórbrotnu útsýni og stórum bílskúr með mikilli lofthæð. Mjög stór garður fylgir eigninni og útaf stofu er gengið út á mjög stórar svalir sem snúa í suður með fjölbreyttu útsýni, sjórinn, fjöllin, bærinn og þegar við á gott eldgos. Húsið er skráð 152,4 fm og þar af er bílskúrinn 40,0 fm. Einnig er geymsluloft yfir hluta af húsinu og skriðkjallari undir því öllu sem gerir aðgengi að lögnum og þakrými einstaklega þægilegt. Rúmgóð innkeyrsla og stór og gróinn garður með t.d. rabbabara, jarðarberjum, rifsberjum og sólberjum. Það er dásamlegt að sitja á svölunum á góðviðrisdegi með kaffibollann og gæða sér á nýtýndum jarðarberjum úr garðinum.

Baðherbergi var allt endurnýjað 2021 og skipt um alla glugga 2026 ásamt svalahurð í húsinu (fyrir utan 2 sem voru endurnýjaðir 2019 og 2021).

Lýsing eignar:  

Fyrir framan húsið er stórt hellulagt svæði. Gengið er beint inn í forstofu með harðparketi og fatahengi. Innaf forstofu er barnaherbergi með harðparketi og lausum fataskáp. 3 svefnherbergi í heildina í húsinu. Barnaherbergi með harðparketi og lausum skáp og mjög rúmgott hjónaherbergi með föstum skápum. Baðherbergi var endurnýjað 2021. Það er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, innrétting, upphengt salerni og gluggi. Eldhús og stofa er opið rými. Eldhúsinnrétting er með L-laga innréttingu, efri og neðri skápum, harðparket á gólfi, innaf eldhúsi er þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu og vask. Yfir þvottahúsi er geymsluloft og frá þvottahúsi er útgengt. 

Bílskúrinn er rúmgóður með góðri lofthæð, heitt og kalt vatn, rafmagn, bæði bílskúrshurð með mótor og gönguhurð sem og gluggar.

Garðurinn er stór og gróinn.

Nánasta umhverfi: Það er stutt í alla þjónustu, hverfisskólinn er lítill og góður. Húsið er vel staðsett í rólegum botnlanga og stutt í leikkskóla og skóla. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

152,4 m2 3 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: já

Eiginleikar eignar

Tegund Einbýlishús
Verð 118.700.000 kr.
Fasteignamat 105.500.000 kr.
Brunabótamat 78.250.000 kr.
Stærð 152,4 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 1994
Lyfta nei
Bílskúr já
Bílskýli nei
Garður já
Skráð 18.11.2026

Deila eign



Pin it